Ég vil beita mér fyrir því að atvinnulífið þróist í átt að fjölbreytni og tel að varast beri að líta til stóriðjustarfssemi eða annarra allsherjarlausna. Mikilvægt er að hlúa að nýsköpun, tækni og hugviti sem og aðstöðu lítilla eða meðalstórra fyrirtækja. Atvinnulífið verður ennfremur að þróast í sátt við samfélagið og náttúruna og ná að styrkja byggð um land allt.
Huga verður betur að tengslum samfélags og atvinnulífs í sem flestum málaflokkum og gera fólki það kleift að vinna en jafnframt hlúa að fjölskyldu sinni. Til þess þarf fjölskylduvænt starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma o.s.frv. Það er að mínu mati forgangsmál að lengja fæðingarorlof foreldra.
Nauðsynlegt er að setja fyrirtækjum skýrar leikreglur og hafa öflugt eftirlit með því að eftir þeim reglum sé farið. Stjórnmálamenn verða að hafa í huga áhrif atvinnulífs og fyrirtækjareksturs á náttúruna, setja fyrirtækjum staðla og stuðla að öflugu eftirliti. Ennfremur þarf að tryggja að farið sé eftir stöðlum og það umhverfismat sem lagt er upp með standist með reglubundnu eftirliti.
Mikilvægt er að fólki séu kynnt réttindi sín á vinnumarkaði og njóti aðstoðar við að leita réttar síns ef á þeim er brotið.