Það er ólíðandi að konur séu enn í dag að berjast fyrir sjálfsögðum réttindum sínum, að konum sé enn mismunað vegna kynferðis síns.
Ég vil samfélag þar sem konur og karlar eru jafnrétthá. Samfélag þar sem enginn kynbundin launamunur er til staðar, ekkert kynbundið ofbeldi. Samfélag þar sem komið er fram við konur sem manneskjur ekki markaðsvörur.
Til þess að draumsýn mín geti orðið að veruleika þurfa karlar að afsala sér þeim forréttindum sem þeir hafa tekið í arf.