Jun 30

Þar sem að nokkrir kommúnumeðlimir eru þegar búnir að bjóða formlega í heimsókn á þessar nýju fallegu síður fylgi ég í kjölfarið og býð lesendur hjartanlega velkomna á þennan nýja tjáningavettvang minn.

Read the rest of this entry »

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 06 30th, 2004| icon33 Comments »
Jun 28

Þá hefur Ólafur Ragnar Grímsson fengið endurnýjað umboð sitt sem forseti Íslands. Ég, ólíkt flestum öðrum, hef litlar skoðanir á því hvort hann geti túlkað þetta sigur eða ekki. Sama hvernig þú setur þetta fram er niðurstaðan alltaf sú sama, hann vann kosningarnar, sem mér finnst gott.

Ég var að vinna við kosningarnar og sat í fyrsta skipti sem oddviti í minni kjördeild. Ég náði því ekki að hafa jafn gaman af deginum og venjulega því ég var stressuð og með hugann við að allt stemmdi allan daginn. Ég hef því mjög líklega verið leiðinlega kellingin sem skipti sér allt of mikið af samstarfsfólki mínu.

Read the rest of this entry »

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 06 28th, 2004| icon32 Comments »
Jun 24

Dagurinn í dag byrjaði á skemmtilegu nótunum en hér á vinnustað mínum spruttu upp heitar umræður um launakjör kvenna og niðurstöður nýju launakönnunar SÍB. Ein kvennanna hér er á þeirra skoðun að konur geti sjálfum sér um kennt fyrir lág launakjör og upp úr því spruttu miklar pælingar.

Þegar ég benti henni á að ég hefði nú farið nokkrum sinnum og beðið um launahækkun, kom í ljós að það staðreyndin “konum að kenna” átti ekki við konur eins og mig.

Önnur benti henni á að hún gæti einfaldlega ekki staðið upp og farið til að sýna vanþóknun á launakjörum þar sem hún væri rúmlega sextug, einungis með reynslu í bankanum og fengi ekki vinnu annars staðar vegna aldurs - þetta sagði hún að yfirmenn nýttu sér óspart. Ég býst við að staðreyndin “konunum sjálfum að kenna” eigi ekki heldur við hana.

Þá er eftir spurningin hvaða konum er það að kenna að konur eins og ég eru almennt með lægri laun en karlar, jafnvel karlar í sambærilegum störfum? Hvaða konur eru það sem eru að halda aftur að launakjörum mínum?

Read the rest of this entry »

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 06 24th, 2004| icon32 Comments »
Jun 23

Hvað er málið með hann Gest Einar á Rás 2?

Ég hélt að það hlyti að vera gegn einhverjum alþjóðlegum reglum að pynta fólk á þennan hátt, hvað þá heila þjóð í einu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 06 23rd, 2004| icon3No Comments »
Jun 22

Sverrir var kanski fyrstur til að blogga og Elli fyrstur til að skrifa langlokublogg EN ég er a.m.k. með flottasta bloggið.

Annað mál. Ég er búin að vera að taka til og setja inn linka. Ég neita hins vegar að linka á fólk sem segist vera í sumarfríi frá bloggskriftum og ég neita að linka á fólk sem bloggar sjaldnar en einu sinni í mánuði! Sumt fólk hefur prinsipp hvað varðar umhverfismál eða framhjáhald.. ég hef aftur á móti prinsipp sem snúa að hvern ég linka á og hvern ekki

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 06 22nd, 2004| icon34 Comments »
Jun 22

Auglýsi hér með eftir tölvunörd með ágætisþekkingu á movable type publishing platform (þ.e. forritinu sem ég er að vinna í ákkúrat núna) til að hjálpa til við að gera þessa fallegu síðu enn sætari.

Getur einhver ímyndað sér skemmtilegri kvöldstund en að fikta í style sheet(i) með gott heimabrugg við hendina?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 06 22nd, 2004| icon34 Comments »
Jun 22

Þá er hetjudáð sumarsins lokið. Gekk á Esjuna í gær!

Þetta er einnig nokkur hetjudáð -
ný síða, nýr vettvangur, nýir möguleikar

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 06 22nd, 2004| icon33 Comments »