Á morgun er síðasti dagurinn minn sem þjónustufulltrúi í KB Banka. VÍJ
Þeim sem vantar því góða fjármálaráðgjöf er bent á að tala við mig fyrir lokun á morgun. Þar sem ég er svo himinlifandi yfir fyrirhuguðum starfslokum get ég þó ekki lofað fullri einbeitingu né mikilli hugmyndaauðgi.
Á morgun, eftir síðasta vinnudaginn minn, legg ég af stað út úr bænum og kem ekki aftur fyrr en eftir helgina. Planið er að fara í Skagafjörðinn og dvelja á stórbýlinu Flugmýrarhvammi í Akrahreppi. Fúsi og Matti eru búnir að liggja sveittir yfir skipulagningu hátíðarinnar og hafa lofað mörgum skemmtiatriðum en Erla hefur hótað að stjórna fjöldasöngi (úff).
Góða helgi!!
Á morgun ….