Aug 28

Rosalega er Drífa Snædal skemmtilegur penni!

Þetta er ein skemmtilegasta grein sem ég hef lesið í lengri tíma.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 08 28th, 2004| icon33 Comments »
Aug 24

Það er allt of langt síðan ég hef bloggað. Þrátt fyrir það er ég enn með bloggstíflu (sem er sennilega eitthvað svipað ritstíflu). Vonandi kemur andinn yfir mig þegar skólinn byrjar og maður hættir að vinna sér til óbótar alla daga.

Í gær átti ég 25 ára afmæli og við hjónin áttum eins árs brúðkaupsafmæli. Þegar ég kom heim eftir annasaman dag í vinnu komst ég enn og aftur að því að ég er ótrúlega vel gift. Freyr var búinn að taka til í allri íbúðinni og tók á móti mér með ostabakka, blómum og pakka sem innihélt draum minn til margra mánaða. Ég þakka öllum góðar kveðjur.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 08 24th, 2004| icon33 Comments »
Aug 13

Það er allt of heitt til að blogga.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 08 13th, 2004| icon34 Comments »
Aug 9

Hver í fjandanum er með Aðferðafræði I glósurnar mínar?

Drífa?
Erla?

Mig vantar þær sem allra fyrst, er að fara að kenna fljótlega og get það að sjálfsögðu ekki nema með hjálp möppunnar góðu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 08 9th, 2004| icon31 Comment »
Aug 8

Jahá! Þá er ég búin að vera atvinnulaus aumingi í eina viku (hemm… atvinnulaus ef ég tel ekki skúringarnar með). Ég er búin að þræða netvinnumiðlanir og skoða smáauglýsingar með áhuga í leit að vinnu til að stunda með skólanum næsta vetur.

Áhugaverðasta vinnuviðtalið verður að teljast það sem ég átti við verslunarstjóra 11-11 á Laugarvegi. Það að mæta í viðtalið var einhvers konar samviskubitsheimsókn þar sem ég hef engan áhuga á að vinna í búð. Greyið maðurinn sem tók á móti mér hafði ekkert undirbúið sig, vissi ekki hve margar vaktir hann vildi fá mig á eða á hvaða tímum sólarhringsins. Þegar ég leiddi talið að því vinsæla umræðuefni launum var hann ekki með nýjustu kjarasamningana hjá sér en eftir hálftímaleit á innraneti fyrirtækisins og nokkur samtöl við aðra í fyrirtækinu sagði mér stoltur að kaupið væri rétt yfir 800 krónur á tímann…. sem hefði svo sem getað verið ásættanlegt sem byrjunarkaup nema hann var að kynna mér yfirvinnukaupið. Þegar ég tilkynnti í sakleysi mínu og hreinskilni að ég hefði í alvöru aldrei heyrt talað um yfirvinnukaup undir 1000 kall á tímann var greyið maðurinn stórhissa og leit helst út fyrir að telja að ég kæmi frá betri hverfum Hollywood. Jæja, ég bað hann allavega vel að lifa. Hvaða heilbrigða manneskja vinnur fyrir slíkt kaup?

Það er samt merkilegt hvað ég er að eyða miklum tíma í starfsleit fyrir veturinn miðað við hvað ég er hrikalega sátt við aðgerðarleysið og sjálfsdekrið.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 08 8th, 2004| icon31 Comment »