Sep 30

Ég er búin að vera að senda sníkjubréf undanfarna daga til manna sem ég þarf að taka viðtal við í tengslum við lokaverkefnið mitt. Einn er búin að svara játandi, þrír neitandi. Vandamálið er að ég er að verða uppiskroppa með fólk!

Ég auglýsi því hér með eftir ábendingum um einstaklinga sem hafa umtalsverða stjórnunarreynslu hjá hinu opinbera OG hinu einkarekna
. Ég vil þó ekki ábendingar um stjórnmálamenn.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 30th, 2004| icon32 Comments »
Sep 30

Úff.. þessi kona með míkrafón. Heimurinn versnandi fer. Til fjandans með skipanir í hæstaréttarembætti o.s.frv. Þetta er miklu uggvænlegri þróun.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 30th, 2004| icon33 Comments »
Sep 30

Mæli með skúbbi dagsins hjá Svansson.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 30th, 2004| icon3No Comments »
Sep 29

Mikil lifandi skelfingar ósköp er ég orðin þreytt á málflutningi Framsóknarmanna sem eru svekktir yfir að fólk VOGI SÉR að hafa eigin skoðanir, hvað þá fylgi eigin sannfæringu.

Þó að við kjósum flokka inn á Alþingi dylst vonandi fáum að það er ansi margt sem ekki er endilega tengt við flokka. Það eru t.a.m. ansi mörg mál sem ekki var minnst á í kosningabaráttunni, koma ekki fram í stefnum flokkanna né þessum fræga stjórnarsáttmála (heyri ég einhvern minnast á mannréttindabrot í Írak?). Ef að flokksgæðingar mega ekki líta til eigin sannfæringar í slíkum málefnum held ég að okkur væri hollast að forrita nokkrar tölvur til að taka ákvarðanir í anda þeirra flokka sem eru á Alþingi og hætta að borga þessum “einstaklingum” laun.

Hvað er nú orðið um alla þá sem styðja einstaklingshyggju?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 29th, 2004| icon31 Comment »
Sep 29

Ég er mest fúl yfir að missa af Októberfestinni annað árið í röð.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 29th, 2004| icon3No Comments »
Sep 27

Ég HEIMTA að fá að spila RISK í vikunni. Hvað segið þið um það dömur? Ég er laus mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Hvað með ykkur?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 27th, 2004| icon31 Comment »
Sep 27

Því lengur sem háskólaganga mín dregst á langinn því harkalegra verður ofnæmi mitt fyrir “tjáningaglöðuveitþaðalltfólki” í tímum. Þar sem meðalaldur í kúrsum hjá mér er um 45 ár verður ofnæmið að teljast lífshættulegt.

Ég eyddi því megninu af tímanum í morgun í þá skemmtilegu iðju að stunda persónunjósnir um fólk sem ég þekki ekki neitt, heldur kannast við í gegnum kunningja, vina minna… eða eitthvað í þá áttina. Takk kærlega fyrir þráðlaust netkort!

Á ferðalagi mínu rakst ég inn á stórskemmtilegt blogg sem ég mæli með. Það er bloggið hennar Sigurlaugar, sem ég get þó hrósað mér af að hafa séð við tilfelli (og því skulið þið ekki voga ykkur að kalla mig stalker). Það fyrsta sem vakti velþóknun mína á þessari síðu er að sjálfsögðu linkurinn hennar yfir á þáttinn Gilmore Girls sem er ekki nema skemmtilegasti þáttur í öllum heiminum! En þar fyrir utan er ágætt fyrir alla að minna sig á allt það bjarta, væmna og skemmtilega í lífinu, vera ástfanginn og lífsglaður og hvoru tveggja skín í gegnum skrif hennar. Dagurinn er bjartari fyrir vikið.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 27th, 2004| icon3No Comments »
Sep 25

Um leið og klukkan hringdi í morgun var skrýtni kötturinn kominn upp í rúm til okkar. Hann mjálmaði, veinaði og stangaði okkur þar til við miskunnuðum okkur yfir hann og klöppuðum honum…eða það var a.m.k. það sem við héldum. Eftir um eina mínútu var “greyið” kisinn búinn að fá nóg af þessari góðgerðarvinnu sinni og gerði okkur það ljóst að ef hann “leyfði” okkur að klappa sér vildi hann fá mat að launum. Það var því ekki annað til ráða en að fara fram úr og gefa greyið kisunum sem mændu á okkur af gólfinu.

Skrýtnir morgnar á kisuheimilinu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 25th, 2004| icon3No Comments »
Sep 21

Jæja, þá er Drífa loksins lifnuð við á blogginu. Hún er hér með tekinn af aumingjablogglistanum mínum. Annars á hún eiginlega ekki skilið að hafa verið á aumingjablogglistanum svona lengi þar sem að hún hefur verið að vinna á fullu við að koma upp síðu fyrir Fjölskyldunefnd SHÍ þar sem að foreldrar geta nálgast hinar margvíslegustu upplýsingar s.s. um íþróttanámskeiðið sem hún er að skipuleggja. Ég legg til að allir klappi Drífu á bakið fyrir að vera fyrirmyndar einstaklingur á vegum Háskólalistans …. klisja

Annars eru fleiri að vinna Háskólalistanum fylgis en Drífa. Eftir nokkuð langt svefnleysi í kosningabaráttunni var það orðinn aðalhúmorinn í Háskólalistaherbúðunum að listinn yrði að vera 100% pólitískt réttur, þ.e. á honum yrðu að vera einhver fatlaður , einstaklingar af öllum kynþáttum, einn rauðhærður, nokkrir með gleraugu og síðast en ekki síst einhver örvhentur. Ég verð að viðurkenna að ég hélt að enginn hefði tekið þetta alvarlega fyrr en ég sá Erlu í skólanum í gær.

Fyrir utan elskulegar vinkonur mínar fær Ríkissjónvarpið einnig hrós. Í kvöld mun ég fylgjast með Gilmore Girl’s sem eru að byrja aftur á dagskrá JEI

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 21st, 2004| icon33 Comments »
Sep 15

Minni á mótmæli við skertan opnunartíma Þjóðarbókhlöðunnar fyrir UTAN hana á morgun fimmtudag kl. 19:00…

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 15th, 2004| icon32 Comments »

« Previous Entries