Oct 28

Ég mótmæli þessu hvíta ógeði sem læddist ofan úr himnunum í morgun. JAKK

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 28th, 2004| icon32 Comments »
Oct 28

Allir að mæta!! (nema að sjálfsögðu ég sem er svo mikið snobb að ég á miða á Lísu Ekdahl í staðinn, múhahhahahhahah).

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 28th, 2004| icon3No Comments »
Oct 23

Ef einhver er að leita að mér þá er ég þessi úber hressa á þriðju hæðinni upp í Þjóðarbókhlöðu. Ég er augljóslega stelpan sem vaknaði fyrir löngu í þeim tilgangi að skrifa gáfulega bókargagnrýni.

Úff hvað mér líður eins og duglegustu manneskju í veröldinni.

En svona í alvöru talað þá verð ég alltaf jafn hissa (alltaf þessi tvö skipti á ári sem þetta gerist) þegar ég mæti upp í hlöðu á laugardagsmorgni og fæ hvergi stæði því fullt af öðru fólki datt líka í hug að læra! Ég lít furðulostin í kringum mig og spái í hvort að það sé í alvöru til fólk sem stundi þetta að jafnaði, eða hvort þetta sé einvörðungu tilviljun líkt og það að skipa bara menn í nefnd á vegum ríkisins.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 23rd, 2004| icon31 Comment »
Oct 20

Hverjum hefði dottið í hug að það hefðu komið upp deilur varðandi Nóbelsverðlaunaafhendingar í gegnum tíðina?

Þetta er alveg stórmerkilegt mál sem klárlega þarf að fá miðsíðu Moggans undir sig til frekari umfjöllunar næstu daga. Ójá! ég sem hélt að Halldór Laxness hefði verið óskabarn allra og að hans pólitísku meiningar hefðu aldrei orðið til þess að pirra neinn.

Og til að auka enn á undrun mína… Hverjum hefði dottið í hug að Hannes Hólmsteinn Gissurarson - HANN af öllum mönnum myndi fjalla um þetta.

Þetta er svona álíka merkilegt og að eftir kúrsinn Inngang að stjórnmálaheimspeki sé það eina sem ég man að Hannes sagði um Karl Marx eitthvað á þá leið og hann hafi átt lausaleiksbarn sem kom undir þegar hann hélt fram hjá konunni sem hélt honum uppi. Jú! og að hann var rasisti sem og að hann vildi ekki að Ísland fengi sjálfstæði frá Danmörku.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 20th, 2004| icon3No Comments »
Oct 18

Svei þeim sem tók upp á því að baka vöfflur í húsinu mínu í dag.

Það er ljótt að monta sig. Það er ljótt að kvelja aðra.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 18th, 2004| icon31 Comment »
Oct 13

Klukkan allt of snemma á Þjóðarbókhlöðunni (8:15)

Ég: Já, ég ætlaði að fá að kíkja á þessa BS ritgerð (rétti konunni fallega bleika miðann).

Konan: Gengur á bak við og er drjúga stund að vesenast. Kemur svo fram og segir “Þessi ritgerð er því miður trúnaðarmál til 1998″.

Ég: Já (smá þögn) þá ætti hún einmitt að vera aðgengileg núna….

Konan: Lítur út eins og eitt spurningarmerki

Ég: jú, þar sem það er árið 2004…

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 13th, 2004| icon32 Comments »
Oct 10

Jæja.. það er alltaf skemmtilegt að uppgötva nýja bloggara, jafnvel hér á kommúnunni.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 10th, 2004| icon33 Comments »
Oct 9

lorilie
Lorelie

What Gilmore Girl’s character are you?
brought to you by Quizilla

Jibbí að ég er ekki París Geller eins og ég óttaðist … ;)

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 9th, 2004| icon35 Comments »
Oct 7

Af fréttavef mbl - Gabriela Longo, 35 ára kona frá Argentínu, tapaði skaðabótamáli sem hún höfðaði gegn hinu opinbera vegna misheppnaðrar fegrunaraðgerðar.

Maður getur ekki kvartað undan útkomunni úr ókeypis fegrunaraðgerð á vegum hins opinbera. Það er augljóst að maður getur ekki búist við sömu útkomu út ókeypis aðgerð og úr aðgerð sem greitt er fyrir, og væri gerð af læknum sem eru sérfræðingar og fá helling af peningum. Það er ósanngjarnt að krefjast þess að læknar hins opinbera vinni vel í ónýtu heilbrigðiskerfi. Fyrst þessi kona ákvað að gangast undir aðgerðina hjá hinu opinbera hefði hún mátt vita að læknarnir væru ekki þeir bestu.

Jamm og jæja…

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 7th, 2004| icon31 Comment »
Oct 6

Það er merkilegt hvað sumir hafa áhyggjur af áður en þeir leggjast inn á spítala…. ég myndi hafa áhyggjur af sársauka …..

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 6th, 2004| icon3No Comments »

« Previous Entries