Have you…
ever had a song written about you? Jah.. það er nú til lag sem heitir Auður er undarleg en ég get að sjálfsögðu ekki staðhæft að það fjalli um mig.
Reyndar er ég mjög sátt við lagaleysið því að einu sinni tók drengur upp á því að senda mér heilu kvæðabálkana um ást sína á mér nafnlaust heim til mín í pósti. Mér fannst það frekar krípí… og eftir að ég komst að því hver hann var varð ég frekar sorgmædd en glöð því þetta var einn besti vinur minn og ég hefði viljað halda þeirri stöðu áfram. Úff.. sorgleg saga.
had piercings?Ég hef gert ótal margar tilraunir til að fá göt í eyrun en ekki gengið. Ég er með svo þrálátt nikkelofæmi sem kemur sér ekki vel þegar það á að gata líkamann en kemur sér einkar vel til að kanna hvort að vinir og ættingjar eru nískupúkar eða ekki, þ.e. hverjir gefa EKTA gjafir og hverjir ekki.
Einu sinni fékk ég mér líka hring í augabrúnina. Það var mjög töff þar til ég greiddi hann úr mér - Það var einfaldlega sárt.
ever had a hard time getting over somone? Úff.. ég er dramadrottning í ástarsorgum. Lagðist í rúmið eftir fyrstu ástarsorgina (13 ára) og hélt í alvöru að ég myndi aldrei aftur verða hamingjusöm. Enda hef ég samið heilu ljóðabækurnar um ástarsorgir og þjáningar mínar á meðan að á þeim stendur. Ég var annars mjög efnilegt skúffuskáld af þessum sökum um tíma. Svo þurfti ég að vera svo óheppin að lenda á manni sem er ekkert á leiðinni að skila mér og eftir það hefur skáldskapargenið yfirgefið mig að mestu leiti.
ever been hurt? jú ætli allir geti ekki fundið einhverja sára minningar, sumar sárari en aðrar.
ever been in love? Jamm, ég hef verið skotin, hrifin af og ástfangin. Í dag er ég t.a.m. ákaflega ástfangin af manninum sem vaknaði fyrir allar aldir til að hita te handa mér og koma mér á lappir þrátt fyrir að hafa þurft að ná í verkjatölu handa mér um miðja nótt. Ég er enn ástfangnari af manninum sem fór út á undan mér til að skafa af bílnum og hita hann. Suma daga er hugsað ógurlega vel um mig.
had a medical emergency? Ég hef nokkrum sinnum fengið gat á hausinn, fótbrotnað og eitthvað svona smávægilegt sem ekki þykir frásögu færandi. Það merkilegasta er þó sennilega þegar að ég og Freyr keyrðum á greyið hrossið í Akrahreppi.
Það var svarta myrkur og engin umferð þannig að ég þurfti að leiða Frey greyið hálfblindann og aumingjalegan upp að næsta bæ þar sem að ábúandinn fékk vægt taugaáfall við að opna dyrnar. Það er í eina skiptið sem ég hef fengið að fara í sjúkrabíl og alles. Framhaldið var þó heldur óskemmtilegt því ég gleymdist á ganginum á sjúkrahúsinu (meðan allir voru að einbeita sér að Frey) þannig að ég tölti niður á vist alblóðug og rifin. Ég man þetta vel því þetta var á bolludaginn og vinkona mín skellihló þegar hún hitti mig, hélt að einhver hefði klínt sultu yfir mig alla.
swam in the dark? Ójá… bý á Íslandi, þar sem er dimmt meirihluta ársins.
got drunk? Hvers konar spurningar eru þetta eiginlega?
ran away from home? Já! mig minnir að ég hafi gert nokkrar fyndnar tilraunir til þess þegar ég var lítil. Þá setti ég eitthvað af fötum í svona lítinn sundpoka og labbaði út á Bjössaróló.
gotten beat up? Nei, í mínum vinahóp var það Drífa sem sá um það hlutverk.
beaten someone up? Nei, það var líka í starfslýsingu Drífu.
been onstage? Allt of oft. Ég var athyglissjúk með eindæmum á grunnskólaárunum og áleit það regin hneyksli ef ég fékk ekki að fara á svið og syngja eða dansa á hverri einustu skemmtun. Ég hef enn ekki fengið að gleyma öllum gloríunum mínum þar sem flest allt er til á myndbandi og dregið upp á endurfundnum bekkjarfélaganna. Í framhaldsskóla hélt ég áfram sýkinni en ákvað að hætta á toppnum eftir söngvakeppni framhaldsskólanna í Laugardalshöll (úff… sviðskrekkur dauðans).
been on radio or tv? Hef bæði verið í beinni í sjónvarpinu og útvarpinu, þannig að ég er búin með mínar 15 mínútur…
Meira um tónlist
what song makes you cry? Flest lög með Írafár… það er svo sorglegt band …..
Ef ég er aftur á móti svo reið að mér liggur við gráti get ég þó alltaf látið á Rage against the machine eða Skunk Ananasie og öskrað í stofunni hjá mér. Það er einhver skemmtileg tenging við gelguárin og alltofmikið hormónaflæði. Alvöru tár gætu hins vegar vaknað við lag Lisu Ekdahl - Du sålde våra hjärtan
what song makes you happy? úff.. erfiðasta spurningin! ég verð eiginlega mest glöð þegar ég heyri lag sem tengist skemmtilegum minningum s.s. hallærislegu sveitaballi eða enn einu kvöldi á rúntinum. Það skiptir þá ekki mestu lagi hvort lagið er gott eða hvaða lag það er yfir höfuð heldur tengingin við minninguna. Ég verð t.d. að viðurkenna að Saturday Night og Jack, Jack, Jacky geta kveikt gleðineistann.
_____________________________________________________________________
Það er ótrúlega merkilegt hvað maður getur tekið sér fyrir hendur þegar maður situr upp í Odda og nennir ekki að læra. Ég hef það samt mér til varnar að ég svaraði ekki öllum spurningunum í bréfinu.
Read the rest of this entry »