1. Fullt nafn? Auður Lilja Erlingsdóttir
2. Fyrirmyndin í lífinu? Mamma og pabbi að sjálfsögðu
3. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Úff… eru það ekki bara bestu bækurnar hverju sinni. Það er ein bók sem ég las í skólanumeftir Anne Phillips, Politics of presence, sem situr alltaf fast í mér. En svo eiga aðra bækur stóran sess í lífi mínu s.s. Salka Valka, Atómstöðin, Glæpur og refsing og miklu fleiri.
4. Hvern myndir þú mest vilja hitta? piff bulluspurning ég er sífellt að hitta fólk sem ég vil hitta.
5. Uppáhaldsnafn (ef þú mættir velja þér annað nafn)? Sigurbjörg
6. Uppáhalds hlutur? Skápurinn minn og kommóðan sem ég rændi frá mömmu þegar ég flutti að heiman, trúlofunarhringurinn minn (svo sætur) og fallega tölvan mín.
7. Æskudraumur? Gefa út ljóðabók
8. Hvernig er tannburstinn þinn á litinn? Grænn minnir mig…
9. Hvað sefurðu yfirleitt marga tíma á nóttinni? 6-8 tíma
10. Leiðinlegasta sem þú gerir? Hanga í vinnunni og svara asnalegum prófum því það er ekkert að gera.
11. Ef þú fengir einn dag aleinn/alein, hvað myndirðu gera? Drekka gott kaffi, konfekt með því og lesa góða bók upp í rúmi.
12. Ef þú gætir skipt um starf, hvað sérðu fyrir þér að gera? Annað en að vera fátækur nemi - glætan!
13. Leyniuppskrift fyrir hæsi og kvefi? TE og aftur TE, helst með hunangi, engifer og sítrónu.
14. Uppáhaldsmatur/uppskrift? Humar í hvítloksolíu með sallati.. namm…
15. Manstu eftir “mómenti” sem breytti öllu í lífi þínu? Augnablikið sem ég uppgötvaði fyrst að það skipti engu máli hvernig fólki líkaði við mig ef ég væri sjálf sátt var nokkuð magnað.
16. Bugs Bunny eða Daffy Duck? Hvorugur
17. Skúrar þú heima hjá þér? Helst ekki, en jú það kemur fyrir
18. Hvar ætlarðu að eyða ellinni? Með góðu fólki, sama hvar.