Jan 31

Á föstudaginn var listi Háskólalistans kynntur með tilheyrandi fögnuði á Stúdentakjallaranum. Jakob og Freyr stýrðu dagskránni á sinn einstaka en jafnframt einfalda hátt, greinilega búnir að leggja mikla vinnu í að googla hina og þessa frambjóðendurna eða hringja í vini þeirra til að njósna. Það var a.m.k. ýmislegt sem ég komst að. Hvern hefði t.a.m. grunað að á listanum hjá okkur sæti stofnandi félags rauðhærðra?

Að lokinn listakynningu héldum við í sumarbústað undir “tryggri” leiðsögn Ella. Við fórum venjulegu leiðina en Elías og félagar völdu að sjálfsögðu styttri leiðina sem leiddi til þess að þeir “stýrðu” okkur áfram í gegnum síma þó þeir væru langt á eftir okkur og Elli kynni augljóslega ekki að lesa á kort! Eftir á að hyggja fattaði ég svo að greyið væri nú svo sem örvhentur og þyrfti þ.a.l. sérhannað kort og því er svo sem ekki hægt að stríða honum á þessu.

Read the rest of this entry »

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 31st, 2005| icon3No Comments »
Jan 30

Þetta er þinn draumur. Við hjálpum þér að láta hann gerast!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 30th, 2005| icon32 Comments »
Jan 28

Múhahahha.. fór inn á spámanninn og lét spá fyrir mér. Maður á víst að skrifa nokkur orð sem eru manni ofarlega í huga og draga svo spil. Þetta er spilið sem ég dró.

Og spáin: Velferð þín er fyrirfram ákveðin af æðri öflum. Hér er þér lýst sem manneskju sem kýs að vera ein endrum og eins og nýtur þess að eiga stundir með sjálfinu. Einmanaleiki angrar þig ekki heldur vellíðan sem tengist rólegu umhverfi þínu sem þú kannt vel að meta um þessar mundir.

Þú hefur lagt á þig ómælda erfiðisvinnu til að ná þeim árangri sem þú býrð við í dag. Nú er komið að þér að njóta tilverunnar. Þú átt það til að efast um að framhaldið verði jafn gott og spár segja en þar ert þú að eyða tíma þínum í óþarfar áhyggjur.

Fjárhagslegt öryggi einkennir framtíð þína

Ef þetta er ekki góð spá fyrir framtíð listans, veit ég ekki hvað er gott…

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 28th, 2005| icon3No Comments »
Jan 27

Þá er nýja lookið komið í gagnið á Háskólalistasíðunni. Njótið vel!

Svo er listakynning Háskólalistans á morgun, Föstudaginn 28. janúar, á Stúdentakjallaranum kl. 20:00. Þeir sem eru forvitnir eru að sjálfsögðu velkomnir þó svo að þeir fái ekki notið félagsskaps við okkur nema í skamman tíma því við förum í sumarbústaðarferð strax að lokinni kynningu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 27th, 2005| icon3No Comments »
Jan 26

Nýja vinnan mín er æðisleg!

Ég gæti einmitt hugsað mér að vinna á svona starfsvettvangi í framtíðinni, sjá um rannsóknir, úttektir og skýrslur í mikilvægum málum.

Ég er samt eitthvað svo allt of ólétt til að sinna öllu því sem mig langar að sinna þessa dagana. Það stendur samt allt til bóta því hluti orkuleysisins stafar víst af miklum járnskorti og planið er því að dópa mig allrækilega upp af járni næstu daga til að ná úr mér þreytu og sleni.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 26th, 2005| icon34 Comments »
Jan 24

Þar sem ég er að fara í myndtöku í dag, vaknaði ég með þessa stærðarinnar rauðu bólu á hökunni. Takk fyrir það!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 24th, 2005| icon33 Comments »
Jan 21

Í dag líður mér eins og ég sé merkilegri en í gær.

Ég hóf starfsnámið mitt hjá Ríkisendurskoðun þar sem ég er með mína eigin skrifstofu. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er með eigin skrifstofu, en ekki í svokölluðu opnu vinnurými.

Í morgun þegar ég fletti Fréttablaðinu sá ég bút úr grein eftir mig sem birtist á vef ungra vinstri grænna. Þetta er líka í fyrsta skipti sem það gerist án þess að ég hreinlega sendi inn grein.

Og til að toppa allt þá er Elli loksins búin að finna sér heilbrigða fyrirmynd í lífinu, þ.e. mig að sjálfsögðu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 21st, 2005| icon31 Comment »
Jan 20

Snöggar breytingar. Í dag fékk ég póst frá konunni sem sér um starfsnám MPA nemenda. Á morgun byrja ég svo í starfsnámi hjá Ríkisendurskoðun þar sem ég mun starfa fram að fæðingarorlofi. Spennandi, ekki satt?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 20th, 2005| icon3No Comments »
Jan 19

Ég held barasta að Jakob sé einn besti fundarstjóri sem ég hef haft á fundi í lengri tíma.

jamm… mikið af fundum þessa dagana.
Í gær var Stúdentaráðsfundur og Háskólalistafundur. Í dag er RUVG fundur. Á morgun er svo sennilega H-vaða fundur.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 19th, 2005| icon3No Comments »
Jan 5

Nú jæja, niðurstöður könnunar Gallup um viðhorf landans til veru á lista hinna staðföstu þjóða eru nokk merkilegar að mínu mati.

Á Dabbi greyið enga vini lengur?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 5th, 2005| icon33 Comments »