Nýja vinnan mín er æðisleg!
Ég gæti einmitt hugsað mér að vinna á svona starfsvettvangi í framtíðinni, sjá um rannsóknir, úttektir og skýrslur í mikilvægum málum.
Ég er samt eitthvað svo allt of ólétt til að sinna öllu því sem mig langar að sinna þessa dagana. Það stendur samt allt til bóta því hluti orkuleysisins stafar víst af miklum járnskorti og planið er því að dópa mig allrækilega upp af járni næstu daga til að ná úr mér þreytu og sleni.
January 26th, 2005 at 14:50
Rautt kjöt, ekki vera að taka einhverjar pillur. Ég endurtek rautt kjöt, jafnvel hrátt.
January 26th, 2005 at 19:12
Sammála seinasta ræðumanni.
Og borðaðu nóg af lifrarpylsu og seríósi! það sögðu þær mér í blóðbankanum þegar þær vísuðu mér frá sökum járnskorts í blóði….;)
January 26th, 2005 at 19:37
Mæli ekki með rauðu kjöti, ja alla vegna ekki hráu fyrir óléttar konur. Held að óléttar konur megi ekki borða rautt kjöt.
Mæli með lifrapyslu áti frekar;)
January 26th, 2005 at 19:57
Lifur, spínat og seríós er málid. Ugh, ég vona ad ég thjáist aldrei af járnskorti…