Feb 25

Ég fer í svo rosalega gott skap í svona fyrirmyndar vorveðri. Ég bara get ekki hætt að brosa.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 25th, 2005| icon35 Comments »
Feb 22

Political Compass niðurstaðan!

Ég hef samkvæmt þessu gerst öfgafyllri með aldrinum…

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 22nd, 2005| icon33 Comments »
Feb 22

Eftir miklar umræður yfir kaffibollanum um enn eitt félagið hjá Framsóknarmönnum í Kópavogi, þ.e. Brynju sem er nýtt félag Framsóknarkvenna í Kópavogi, datt okkur Frey í hug þessi snilldarhugmynd: Stofna félag Vinstri Grænna í Norðurmýri. Við erum jú alveg tvö þar og svo gætum við jafnvel boðið Stebba og Steinunni að vera með, þar sem þau búa bara nokkrum götum neðar.

Eftir að hafa skoðað lögin hjá VG sé ég að þetta er því miður ekki hægt.

Í fyrsta lagi verður slíkt félag skv. 5. grein laga VG að taka til eins eða fleiri sveitarfélaga sem þýðir að við megum því miður ekki stofna félag sem miðar bara við Norðurmýri. Í öðru lagi segir í 6. grein að það megi ekki vera nema eitt svæðisfélag í hverju sveitarfélagi. Þessi leiðinda 6. grein leiðir til þess að flokksmenn VG geta ekki stofnað fjöldann allan af svæðisfélögum í hverju sveitarfélagi þegar þeim líkar illa við hvern annan eða leita valda sjálfum sér til handa.

Djöfulsins vesen!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 22nd, 2005| icon32 Comments »
Feb 20

Í dag fékk ég blómvönd frá sæta manninum mínum. Það sem er enn betra er að hann eyddi megninum af deginum af því að taka til og eldaði svo handa mér og hinni konunni (Erlu) æðislega gott lasagna. Hann er enn að - því nú er hann bölvandi við að setja saman kommóðu/skiptiborð fyrir krílið sem er væntanlegt í heiminn eftir tæpar fjórar vikur. Skemmtilegir svona stórir pakkar með fullt, fullt af hlutum en engar leiðbeiningar.

Merkileg þessi hreiðurgerð. Ég þrái meira en nokkuð annað að vera endalaust að taka til. Og þeir sem þekkja mig vita að það er ekki beinlínis dægrastytting sem ég er vön að dreyma um í miklum mæli. Mér langar að taka til í geymslunni, þrífa alla skápa að innan og þurka af ryk á furðulegustu stöðum. Það sem er merkilegt við þetta er að þráhyggjan kvikni ákkúrat á þeim tíma sem maður er orðinn “of óléttur” til að láta draumana rætast nema í smáskrefanálgun.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 20th, 2005| icon32 Comments »
Feb 16

Ætli maður verði nú ekki að nota tækifærið til að óska hetjunni henni Drífu til hamingju með nýja erfingjann. Hún og Svenni eignuðust agnarlitla stelpu nýlega sem stendur sig, líkt og móðurinn, eins og hetja upp á vökudeild þar sem hún mun dvelja næstu vikurnar. Víst að Drífa gat þolað sængurlegu, fjarri fjölskyldu, í rúman mánuð efast ég ekki um að litla daman standi sig jafn vel.

Allt annað og ótengt mál sem sýnir fram á skaðleg áhrif kosningabaráttu er endalaus húmor minn fyrir nafninu á deildinni, þ.e. að barn aðal Háskólalistaliðans liggi á VÖKUdeild… ok frekar langsótt en mér fannst þetta samt endalaust fyndið. ÚFF!!!!

Ég sjálf ligg aftur í flensu. Lá mest alla síðustu viku. Mætti í vinnuna á mánudaginn og lagðist aftur. Ég hlýt að vera skemmtilegasti starfsnemi sem nokkur stofnun hefur fengið, kasólétt og veik.

Það auðveldar mér þó nokkuð veikindin að ég er komin með húshjálp. Erla tók upp á því nýlega að mæta til mín daglega og vaska upp! Ég veit satt að segja ekki hvort ég eigi að taka þessu sem góðmennsku og hrósi eða gagnrýni á heimilishaldið hér á Guðrúnargötunni. En þar sem ég er auðtrúa og veikgeðja hallast ég að hinu fyrra.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 16th, 2005| icon34 Comments »
Feb 15

urrrrrrrrrrrr

arrrrrrrrrgggggg

Sá sem losar mig við þennan leiðinda vírus (sjá heiti færslu) fær bjórkippu í verðlaun. Djöfull nær hann að pirra mig!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 15th, 2005| icon33 Comments »
Feb 11

Rosalega hef ég gaman af fréttaflutningnum í dag. Stjórnarkreppa í Stúdentaráði! Hvernig væri nú að leyfa þynnkunni að lagast hjá oddvitum fylkinganna áður en vaðið er í umræðu um stjórnarkreppu?

Þó svo að Háskólalistinn stofni ekki til meirihlutasamstarfs við aðra hvora fylkinguna er nokkuð ljóst að samningaviðræður af einhverjum toga þurfa að eiga sér stað til að allt lendi ekki í pattstöðu.

Ég verð samt að viðurkenna að ég hafði einstaklega gaman að þessari frétt!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 11th, 2005| icon34 Comments »
Feb 11

Þetta er eitt af þeim gleðilegustu kvöldum sem ég hef upplifað!

Ég get lofað því að þó ég þurfi að vakna eftir 3 tíma mun ég vakna brosandi.

Öll vinnan, frá stofnun Háskólalistans, getur nú loks borið árangur. Það verður ekkert helvítis Stúdentaráð undir forystu Vöku eða Röskvu, bara Stúdentaráð. Stúdentaráð í þágu nemenda, ekki fylkinga.

Ójá! Góða nótt

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 11th, 2005| icon34 Comments »
Feb 10

Í dag eiga allir stúdentar við HÍ, þ.e. þeir sem ekki eru þegar búnir að því, að mæta á kjörstað og kjósa.

Að sjálfsögðu bendi ég fólki á góðan málstað til að ljá atkvæði sitt X-H. EN ef þetta er ekki ykkar gulrót eru fleiri kostir í boði. Kosningaþátttaka stúdenta undanfarin ár er hreint út sagt búin að vera skammarleg.

Svo þegar þið eruð búin að kjósa, borða kvöldmat og slappa af eftir erfiða ákvörðun á kjörstað (eða ekki) er tilvalið að skella sér á Stúdentakjallarann kl. 21:00 þar sem Háskólalistinn heldur KosningaAndVöku sína. Þar mun líka Stór-Stuð-hljómsveitin Hraun mæta og skemmta á sinn einstaka hátt.

p.s. sáu ekki allir baksíðuna á DV í gær? Þvílík gargandi snilld!!!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 10th, 2005| icon3No Comments »
Feb 9

Minni á kosningarnar sem fara fram í dag og á morgun.

Það er ofsalega fallegt H á kjörseðlinum sem fólk getur x-að við. Það er nefnilega ekki nóg að ætla að kjósa það verður að koma því í framkvæmd líka.

Fréttirnar frá því í gær eiga sem betur fer ekki við rök að styðjast. Mín greining var rétt, þ.e. það er “allt of mikil ólétta” og eilítil flensa sem hrjáir mig þessa dagana en ekki meðgöngueitrun, a.m.k. enn sem komið er. Ég fór í mónítor upp á spítala í morgun og lá þar í þessum fína lazy boy stól, tengd við tæki sem mældi hjartslátt, hreyfingar o.fl. Allt kom svona ljómandi vel út. Það er ekki fallegt að hræða saklausar óléttar konur sem hafa ekki tíma til að liggja heima og glápa upp í loftið.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 9th, 2005| icon31 Comment »

« Previous Entries