Mar 28

Í dag ákváðum við Freyr að byrja á að vinna úrklippubók. Eftir að hafa lesið um nýja Björgólfsbarnið á forsíðu DV, sem er á sama aldri og Freyja Sigrún, datt okkur nefnilega það snjallræði í hug að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma þeim saman. Eða allavega að eiga þann séns ef ske kynni að hún ylli okkur vonbrigðum með því að verða ekki læknir, verkfræðingur eða lögfræðingur.

Í úrklippubókina ætlum við að safna saman upplýsingum um alla fjölskyldu Björgólfs-barnsins og svo þegar Freyja verður svona 12-13 ára byrjum við að fara yfir bókina með henni og getum þá sagt “Sjáðu hérna árið 2007 keypti Björgólfur Den Danske Bank” Með þessu móti getum við aflað upplýsinga sem hún getur nýtt sér í tilhugalífinu þegar fram líða stundir.

Nei svona í alvöru. Greyið barnið! úff

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 28th, 2005| icon34 Comments »
Mar 27

Frá unga aldri hef ég ekki tengt páska við neitt nema páskaegg. Ég hef haft þá hefð furðu lengi að vakna eldsnemma á páskadag, ná í páskaeggið mitt, stórt mjólkurglas og leggjast svo upp í sófa og horfa á barnaefnið. Einhvern tímann verður maður að fullorðnast, kanski ekki seinna vænna þegar maður er orðin móðir, en í dag vaknaði ég ekki fyrr en á hádegi og nú, þegar klukkan er tæplega fimm, er ég ekki enn byrjuð á páskaegginu mínu.

Heimilislífið er annars furðu rólegt. Frumburðurinn sefur og drekkur til skiptis. Lífið hefur þó breyst á margvíslegan hátt með komu hennar. Allavega eru umræðuefni eins og tíðni og form hægða allt í einu orðin “eðlileg”. Að ýmsu leiti er maður orðin “innhverfur”. Hugsar ekki um annað en sjálfan sig og litlu dömuna og gleymir vinum og ættingjum.

Það eru þó margir búnir að koma og kíkja á litlu dömuna og gott að vita til þess að aðrir taka af skarið þegar maður er í eigin heimi. Stór hluti fjölskyldunnar að norðan kom í heimsókn í nokkra daga um daginn og ég var að smella inn myndum af ömmunni og systrum Freys með Freyju Sigrúnu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 27th, 2005| icon33 Comments »
Mar 19

Litla fjölskyldan var dugleg í gær. Við byrjuðum á því að fara með Freyju Sigrúnu til læknis þar sem læknirinn staðfesti grun okkar, þ.e. að um væri að ræða fyrirtaks eintak. Í tilefni af því fórum við stoltu foreldrarnir og skráðum eintakið okkar á Þjóðskránni svo að Freyja Sigrún telst nú fullgildur einstaklingur.

Þar sem við vorum nú einu sinni mætt upp á Þjóðskrá nýttum við tækifærið og sögðum alla fjölskylduna úr Þjóðkirkjunni og gerðumst með því dyggir fjárhagslegir stuðningsmenn HÍ. Ég sjálf var aldrei skírð þegar ég var lítil vegna prinsippa foreldra minna um sjálfákvörðunarrétt einstaklinga hvað varðar trúmál. Ég virði þessa ákvörðun þeirra enn mikils þrátt fyrir að ég hafi að endingu ákveðið að skírast og fermast til að skera mig ekki úr og fá sambærilega meðferð (og gjafir) og bekkjarfélagar mínir.

P.s. ég er búin að bæta við myndum frá fyrsta baðinu í þetta albúm.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 19th, 2005| icon35 Comments »
Mar 19

Ég vil nýta tækifærið til að óska vini mínum og félaga í Háskólalistanum, honum Elíasi Jóni Guðjónssyni, til hamingju með nýja embætti sitt. Ég held að stúdentar séu verulega heppnir að njóta krafta hans sem formanns Stúdentaráðs. Ég held að það sem mestu máli skipti - að hagsmunir stúdenta séu hafðir að leiðarljósi - hafi tekist.

Yfirlýsingar frá Vöku og Röskvu hafa verið eins og við mátti búast. Vaka segir þetta illskásta kostinn og Röskva segir það ólýðræðislegt að fulltrúi frá minnstu fylkingunni fái formannsembættið. Óli Gneisti svarar þessu nokkuð vel hér. Mikið vona ég nú að öll dýrin í skóginum verði vinir á komandi starfsári.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 19th, 2005| icon3No Comments »
Mar 19

Rosalega er Ágúst Einarsson lélegur karakter. Hann tapar í rektorskjörinu og segir ástæðu þess vera að “mikil stemning var fyrir því að gera konu að rektor og sú stemning gerði útslagið í þessum kosningum“*.

Einmitt! Það að Kristín er frambærilegur kandídat í embættið, óháð kyni hennar, hefur ekkert að segja. Að sama skapi hefur vafasamt orðspor hans sjálfs hvað varðar afstöðu til skólagjalda ekkert haft að segja. Þetta kallar maður að kunna ekki að tapa. En hann er a.m.k. heppinn að hafa tapað fyrir konu, því þá getur hann reynt að klína tapinu á kynferði sigurvegarans.

Ég er að sjálfsögðu glöð að næsti rektor HÍ verði kvennmaður. Ég studdi þó Kristínu frá upphafi sem frambærilegasta kandídatinn í embættið og finnst óþarfi hjá Ágústi að segja að það að hún hafi verið kona hafi gert útslagið nema hann hafi einhverjar upplýsignar sem almenningi eru ekki kunnar.

*tilvitnun tekin úr Mogganum 18. mars

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 19th, 2005| icon32 Comments »
Mar 17

Fyrstu dagarnir heima hafa verið rólegir. Freyja Sigrún sefur mikið en þegar hún vakir sláumst við foreldrarnir um að fá að halda á henni og knúsa. Af einhverjum ástæðum finnst mér eins og hún hafi alltaf verið til staðar, þannig að þetta eru ekki mikil viðbrigði eins og ég hélt að þetta yrðu.

Ég skrapp út í dag til að nýta kosningarétt minn í rektorskjörinu og þau feðginin voru ein heima. Það var án stóráfalla og þegar ég kom aftur var Freyja steinsofandi í vöggunni sinni en Freyr búin að taka til. Lúxus!

Setti inn nýjustu myndir af krúttinu hér Bæti sennilega í þetta albúm næstu daga en þá læt ég vita.

P.S. Innilegar þakkir fyrir allar hamingjuóskirnar, hér á síðunni sem og á öðrum síðum. Það er gott að vera óskað til hamingju því maður er náttúrulega svo ógurlega montinn af þessu undri.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 17th, 2005| icon38 Comments »
Mar 15

Þá er erfinginn kominn í heiminn. Erfinginn er óskaplega myndarleg dama sem fæddist um hálf átta leytið á mánudagsmorguninn 14. mars. Hún var 14. merkur og 49 sentimetrar - sem sagt algjört peð miðað við fyrri spár lækna og vísindamanna.

Allt gengur framar bestu vonum og erum við hjónin komin heim með dömuna sem hefur verið nefnd Freyja Sigrún (og er að sjálfsögðu Freysdóttir).

Þar sem herfan, móðir Freyju, er ekki búin að stofna barnalandssíðu geta forvitnir skoðað myndir af nýja undrinu hér!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 15th, 2005| icon323 Comments »
Mar 9

Þegar ég verð reið þá verð ég virkilega reið. Það gerist ekki oft en kemur þó fyrir. Vandamál mitt er þó stærra en eingöngu skapið því ég er jafnframt langrækin og á erfitt með að fyrirgefa eða gleyma þeim sem reita mig til reiði (ef mig langar nokkuð til þess á annað borð).

Þegar ég verð reið er ég fegin að eiga góðan mann til að deila ergelsinu með, panta pizzu og horfa á videó.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 9th, 2005| icon38 Comments »
Mar 9

Og fyrir þá sem ekki voru búnir að taka eftir því þá er ég komin með tengil á myndaalbúm hér til hægri.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 9th, 2005| icon31 Comment »
Mar 9

Ég auglýsi hér með eftir öllum stelpunum/konunum sem eru búnar að öfundast út í mig undanfarnar vikur og lýsa því yfir hvað það væri nú æðislega gaman og gefandi að þvo öll þessi litlu barnaföt, strauja þau og raða þeim ofan í skúffu.

Þeim er nefnilega frjálst að koma og deila gleðinni með mér, eða bara gera þetta fyrir mig :)
Þrátt fyrir alla gleðina yfir komandi fjölskyldumeðlim hef ég enn ekki fundið það í mér að hafa gaman af því að þvo föt (stór eða lítil), hvað þá að ég telji mig öfundsverða af komandi straujun og samanbroti.

Stökkbreyting óléttu konunnar er greinilega ekki hafin, læt vita hvort andinn komi yfir mig á næstu dögum.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 03 9th, 2005| icon35 Comments »

« Previous Entries