May 30

Nýjar MAI myndir, byrja frá og með þessari. Svo er líka hægt að skoða bara allt albúmið aftur ;)

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 30th, 2005| icon32 Comments »
May 30

Þetta er með því fyndnara sem ég hef séð!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 30th, 2005| icon3No Comments »
May 23

Ætli mér hefði verið neitað um ættleiðingu vegna offitu?
Ætli maður geti ekki hrósað happi yfir því að geta eignast barn án leyfis stjórnvalda.

Ég er bara gjörsamlega orðlaus yfir þessari vitleysu. Konan skilar inn með umsókninni læknisvottorði sem vitnar um góða heilsu hennar. Ég hefði haldið að slíkt skipti meira máli en þyngd í kílóum. Ef ætlunin er að fókusera á þyngd í skilyrðum fyrir ættleiðingu hlýtur að sama skapi að vera þörf á að setja eitthvað þyngdarlágmark þar sem að hættulega létt fólk sé of máttfarið til að sinna barnauppeldi, gæti jafnvel verið með lystarstol.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 23rd, 2005| icon32 Comments »
May 23

Mér fannst Gísli Marteinn hegða sér eins og hálfviti í beinni útsendingu og verða sjálfum sér til skammar. Framkoma hans jaðraði við rasisma á köflum þar sem þetta “Balkanskagabumbuberjandibúalið” var sakað um óheiðarleika og lélegan smekk á meðan því var fagnað sem sjálfsögðum hlut að Norðurlöndin kysu hvert annað. Ég varð barasta reið…

Svo fattaði ég það þegar útsendingin var nánast búin að ég hefði getað sloppið við þessa þjáningu með því að horfa á útsendinguna á sænska, norska eða danska sjónvarpinu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 23rd, 2005| icon31 Comment »
May 17

Það var óvenju mikið action þessa helgina.

Á föstudaginn héldum við grillveislu fyrir nokkra vini Freys. Ég sé svo sannarlega ekki eftir að hafa látið undan og fjárfest í grillinu, við erum búin að grilla hér um bil annan hvern dag síðan við keyptum það. Maturinn bragðast líka, einhverra hluta vegna, helmingi betur svona hálfbrunninn….

Á laugardaginn sváfum við út, þvældumst, versluðum skemmtilegt dót fyrir Freyju dekurrófu og enduðum svo í chilli con carne heima hjá ma og pa.

Á sunnudaginn fór ég á bekkjarmót í Borgarnesi. Ég tók því reyndar heldur rólegra en hinn almenni bekkjarfélagi (talið í lítrum áfengis) þar sem Freyr og Freyja Sigrún biðu mín á rúntinum og ég þarf víst að vera heilbrigð og að mestu leyti edrú sem starfandi mjólkurkú fyrir afkvæmið.

Að loknu bekkjarmóti var haldið norður á leið, í sveitasæluna í Skagafirðinum. Freyr greyið er að fara yfir um í að kenna barninu sínu að meta lífið í sveitinni og í Mai - albúminu má nú sjá þó nokkrar myndir þar sem hann gerir tilraun til þess að kynna Freyju og kindur/lömb. Tilraunirnar enduðu flestar í því að Freyja rétt slapp við að vera étin… eða eitthvað í þá áttina.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 17th, 2005| icon33 Comments »
May 13

Þar sem ég hef ekki kost á öðru en að kjósa flokka til Alþingis finnst mér það súrt að einhver geti á miðju kjörtímabili skipt um flokk en setið áfram. Þegar við lítum til kosningakerfisins finnst mér það segja sig sjálft að ef einstaklingur vill skipta um flokk eigi hann eða hún að stíga til hliðar og varamaður úr flokknum sem hlaut atkvæðin að taka við.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 13th, 2005| icon3No Comments »
May 6

Það er svolítið furðulegt að vera ekki í neinum prófum. Erla greyið saknar mín víst voðalega mikið sem prófafélaga, svo mikið að hún er farin að blogga til að halda sönsum.

Í dag er ég búin að vera í 8 vikur í fæðingarorlofi. Ég vissi að orlofið myndi sennilega hafa einhver áhrif á mig en hvern hefði grunað að þessi fordómafulla kona myndi vakna rétt fyrir hádegi á hverjum degi, að deyja úr spenningi yfir því hvað muni gerast í Nágrannaþætti dagsins. Ætli þetta sé ekki góð vísbending um að ég þurfi að fara meira út og hitta fólk (og fólk má líka alveg koma í heimsókn til mín).

Þegar ég fer að sína tendensa í þá áttina að fylgjast með Leiðarljósi líka ætla ég að segja þetta gott og hunskast til að fara að byrja á mastersritgerðinni minni.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 6th, 2005| icon33 Comments »
May 6

Þann fyrsta mai fór ég með þessu fallega fólki í kaffi hjá herstöðvarandstæðingum. Dóttur minni líkaði það einstaklega vel, svaf eins og sveskja allan tímann.

Að loknu vöffluátinu ætlaði ég, að venju, að fara í 1. mai gönguna. Freyju leyst illa á það plan og mótmælti hástöfum. Hún er sennilega á málum hjá þeim sem vilja flytja hátíðarhöldin niður í Húsdýragarð þar sem fólk er til friðs því róttækni er jú svo hallærisleg. Þegar ég náði loksins að róa dömuna niður og koma henni út var gangan löngu komin niður í bæ. Við létum það þó ekki skemma daginn og Elli formaður leiddi okkar eigin litlu 1.mai skrúðgöngu niður á torg.

Annars er Freyja er komin með mai-albúm sem fólk getur kíkt á.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 6th, 2005| icon3No Comments »
May 2

Ég varð auðvitað að fylgja tískunni og gera svona próf.

Hversu vel þekkir þú Auði?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 2nd, 2005| icon36 Comments »