Litla fjölskyldan mín dvelur enn í Akrahreppi. Við ætlum að vera hér a.m.k. fram yfir helgi, umferðin á þjóðvegum landsins um verslunarmannahelgina er ekkert sem heillar mig svakalega mikið. Ég geri voðalega lítið nema að dúllast með dömunni minni, fara í göngutúra niður afleggjarann og lesa. Freyr sést voðalega lítið hér inni. Hann er að mála fjósið og hlöðuna, hangir upp á þaki alla daga (full langt gengið til að forðast okkur).
______________________________________________________________________
Ein af þeim bókum sem ég er búin að lesa hérna er Móðir í hjáverkum. Ég hélt að þetta ætti að vera bók með femínískan boðskap en eftir lesturinn situr helst eftir hjá mér sú tilfinning að það sé ómögulegt fyrir konur að samtvinna barnauppeldi og frama, að konur sem vinni fyrir utan heimilið séu vondar mæður og enn verri eiginkonur og hamingjuna sé einungis hægt að finna með því að hætta að vinna og helga sig uppeldi barnanna. Ég er ekki að segja að bókin sé alslæm, hún hefur nokkra góða punkta og þá sérstaklega í sambandi við framgang kvenna á karlavinnustöðum. Bókin er líka skemmtileg aflestrar en vekur eins og áður sagði upp spurningar hjá mér hver boðskapurinn í henni sé í raun.
Meðan ríkisstjórnin gleðst yfir væntanlegum söluhagnaði vegna Símans sit ég við tölvu í sveitinni. Hér er netið hægfara og rándýrt, ekki beinlínis hægt að halda því fram að landsbyggðin sitji við sama borð og höfuðborgin í þeim efnunum.
______________________________________________________________________
Ætli Bakkavör kippi því ekki í liðinn sem fyrst?
Mig óraði ekki fyrir því hversu mikinn skaða hún Salvör væri búin að valda Framsóknarflokknum. Greyið fólkið, þjakað af einelti þessarar vondu konu, sá sig knúið til að álykta um árásir hennar.
______________________________________________________________________
Einhverjir myndu telja þetta ósvífið og ekki beinlínis hvetjandi til frekari umræðu flokknum til framdráttar en hver er ég að dæma um það.
Jæja þá er ég komin í sveitina og nýt félagsskaps tengdafjölskyldu minnar hér í Akrahreppi. Dóttir mín hefur sjaldan verið jafn sátt og hér í sveitaloftinu, fæst meira að segja til að sofa yfir hábjartan daginn. Þrátt fyrir Það stendur hún ekki undir væntingum sem undrabarnabarnið. Amman er komin með samsæriskenningar um að nafna sín gráti í hvert skipti sem hún taki hana upp og afinn hefur gengið svo langt að kalla hana eitthvað í áttina að skjóðu. Í minningunni er Freyr allt í einu orðinn að hljóðlátum engli. PIFF
Annars geri ég lítið þessa dagana, nema þá helst að lesa nýju Harry Potter bókina og éta. Tengdamamma hefur ekki glatað hæfileikum sínum á sviði matreiðslu og ég keppist í óða önn við að ná aftur þessum örfáu kílóum sem ég er búin að svitna við að losa mig við undanfarnar vikur í líkamsrækt granna og fallega fólksins.
Af hverju í ósköpunum er bara skiptiaðstaða á almenningsstöðum fyrir foreldra með börn inn á kvennaklósettum?
Hvað gera greyið mennirnir sem fara kvennmannslausir í ferðalög og stoppa t.d. í sjoppum landsins?
Og bara í forvitnisskyni. Hefur einhver séð skiptiaðstöðu inn á karlaklósetti? Ef svo er ætti það fyrirtæki að fá jafnréttisverðlaun ársins.

Í dag fór ég í sunnudagsrúnt með foreldrum mínum. Leiðin lá upp í Ljósafossstöð þar sem m.a. var hægt að líta á sýninguna Ár og Kýr eftir Jón Eiríksson bónda og listamann. Sýningin er í fæstum orðum snilld og hugmyndin á bak við hana líka. Á sýningunni getur maður skoðað 365 myndir af kúm en Jón málaði eina mynd á dag í heilt ár. Þetta voru allt vatnslitamyndir og af myndefninu má sjá að málarinn hefur óþreytandi ímyndunarafl. Mæli hiklaust með þessari sýningu.
Í gær fór fjölskyldan, ásamt Þórunni Grétu, í bæjarrölt og kíktum inn í Kolaportið. Venjulega uppsker maður ekkert úr slíkri ferð nema dágóða ógleði vegna þungs lofts og vondrar lyktar. Í gær gengum við þó út með tvenn jakkaföt handa húsbóndanum og það besta var að þau kostuðu samanlagt 1200 krónur. Nú getur Freyr loksins farið út eins og sannur plebbi!
Það var einu sinni maður. Hann gekk menntaveginn og eftir það framaveginn. Hann fékk rokna tekjur sem hann notaði svo til að fjármagna framboð til Alþingis þar sem hann gerðist ráðherra.
Dettur einhverjum í hug við þennan lestur að hann, maðurinn, geti verið kona?
Ég og Freyr skelltum dótturinni í pössun um daginn og skelltum okkur á tónleika. Fyrri Foo Fighters tónleikarnir voru æði og ég átti svo sannarlega ekki von á því að það væri hægt að toppa þá EN JÚ! þeim tókst það!
Þegar við sóttum dótturina aftur loksins um hálf eittleytið tilkynnti hin annars þolinmóða amma hennar mér að Freyja hefði verið ómöguleg allan tímann. Ætli hana hafi ekki bara langað með á tónleikana? Ég held allavega að ég verði að smjaðra verulega fyrir foreldrum mínum áður en ég fæ aftur pössun í heila kvöldstund.
Fyrir afa og ömmur og aðra forvitna linka ég hér á júníalbúm með myndum af snúllunni.