Jafnrétti?

Af hverju í ósköpunum er bara skiptiaðstaða á almenningsstöðum fyrir foreldra með börn inn á kvennaklósettum?

Hvað gera greyið mennirnir sem fara kvennmannslausir í ferðalög og stoppa t.d. í sjoppum landsins?

Og bara í forvitnisskyni. Hefur einhver séð skiptiaðstöðu inn á karlaklósetti? Ef svo er ætti það fyrirtæki að fá jafnréttisverðlaun ársins.

5 Responses

  1. Óli Gneisti Sóleyjarson Says:

    Jájá, ég alveg séð svoleiðis.

  2. Heiðar Says:

    Er þetta ekki oftast á fatlaðraklósettunum? Það er amk þannig í Hyrnunni.

  3. Elías Jón Says:

    Það er svonleis á karlaklóstinu í kringlunni.

  4. Auður Lilja Says:

    Jú þetta er oftast á kvennaklósettum og fatlaðraklósettum. Víðast hvar er þetta þó bara á kvennaklósettum (sérstaklega í sjoppum). Vissi ekki af þessu í Kringlunni, en stefna Kringlunnar er þá jafnréttissinnuð sem er BRA.

  5. Davíð Says:

    Ég sá svona skiptiaðstöðu á karlaklósetti á Spáni en myndin sem útskýrði tilgang hlutarins var samt af konu að skipta á barni.