Ég var víst klukkuð af Guðný Ebbu. Ætli ég verði ekki að hlýta því hlutskipti og deila með ykkur fimm atriðum um sjálfa mig.
1. Ég heiti Auður Lilja. Lilja er í höfuðið á ömmu minni heitinni, mömmu pabba. Þegar ég spurði mömmu einu sinni hvaðan nafnið Auður kæmi útskýrði hún fyrir mér að ég væri skýrð í höfuðið á uppáhalds kvennhetjunni hennar úr íslenskum bókmenntum Auði djúpúðgu. Mér fannst það töff og fylgdi hefðinni þegar ég skýrði dóttur mína, Freyju Sigrúnu. Sigrún er í höfuðið á ömmu hennar í sveitinni, mömmu Freys, en Freyja í höfuðið á uppáhalds persónu minni úr goðatrúnni.
2. Ég á mikið af ljóðum í skúffu. Þegar ég var c.a. 15 ára samdi ég heila ljóðabók fulla af ljóðum um ástarsorg og gaf ættingjum mínum og vinum í jólagjöf. Ljóðabókin hét STÓR TÁR sem lýsir ef til vill best hugarástandi 15 ára unglings eftir fyrstu ástarsorgina og því hvað ég var mikil dramadrottning. Eitt uppáhalds ljóðið úr bókinni hljóðar svo:
Ég sem eitt lítið ljóð til þín
um ást í hjarta mér
en ást þín aldrei verður mín
og því er ég hér
Ég eitt sinn fékk að kyssa þig
í myrkri um miðja nótt
og varir þínar fundu mig
en samt var allt svo hljótt
Nú niður kinnar renna tár
því gráta það ég má
þú veist ekki hvað ég er sár
því þig ég mun aldrei fá
3. Uppáhaldsdrykkurinn minn er bjór. Ég hef farið í marga megrunarkúra, augljóslega með misvarandi árangri sbr. núverandi útlit. Það eina sem ég svindla alltaf á er bjórbindindi.
4. Ég er mjög metnaðargjörn og set miklar kröfur á sjálfa mig. Stundum mætti segja að það sé of mikið af því góða. Ég er t.d. í alvöru fúl yfir því að hafa ekki náð ágætiseinkunn.Ég vinn samt langbest undir pressu en verð hrikalega löt þegar lítið er að gera.
5. Ég hef gaman af pólitík. Lengi vel vildi ég ekki vera flokksbundin . Fannst gott að geta gagnrýnt alla eins og ég vildi. Eftir mikla naflaskoðun ákvað ég þó að ganga í þann flokk sem er næst minni sannfæringu og reyna að hafa áhrif. Ég er nú meðlimur í Vinstri Grænum. Það er fjarri því að ég sé sammála öllu sem fulltrúar flokksins (t.d. á þingi) segja en er nokkuð sátt. Ég hef trú á einstaklingsframtaki, er ef til vill svolítill anarkisti, og starfa sem slík í pólitík. Ég hef því ekki trú á því að ég sé að spila með liði og finnst slíkar hugmyndir sorglegar.
Að endingu vil ég klukka alla á Kommúnunni!