Oct 29

Fréttakona” frá hinum skelfilega fjölmiðli DV hafði samband við manninn minn og vildi ræða við hann um breytingatillögu hans við ályktun um trúfrelsi og rétt til trúleysis á Landsfundinum síðustu helgi. Freyr sem er einstaklega fordómafullur maður gagnvart fjölmiðlinum hugsaði sig um í nokkrar sekúndur og ákvað svo að kanna hvort hægt væri að nota þennan fjölmiðil til að prómótera sín hjartans mál. Auðvitað er fullt af fólki búið að segja sína skoðun á því en maður lærir sjaldnast af reynslu annarra. Niðurstaða þessarar tilraunar er sú að það er ekki hægt að nota DV til að prómótera sín hjartans mál nema vera alveg sama um hvernig þú komir út úr því og þá sérstaklega sama hvað sé haft eftir þér.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 29th, 2005| icon33 Comments »
Oct 27

Ég held að myrkrið sé farið að hafa áhrif á mig. Ég er einstaklega andlaus þessa dagana. Það gæti þó einnig verið hægt að rekja til þess að ég á eitt stykki veikt barn og eitt stykki veikan mann sem krefjast mikillrar athygli og eiga voðalega bágt. Það er líka fáranlega kalt þessa dagana.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 27th, 2005| icon37 Comments »
Oct 23

munaði samt litlu

Ætli ég skrifi ekki meira um dramað þegar ég nenni

p.s. Rosalega finnst mér röddin mín hljóma furðulega í útvarpi. Spurning um að hætta að tala á fundum.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 23rd, 2005| icon34 Comments »
Oct 21

Á síðasta landsfundi Vinstri hreyfingarinnar-græns framboðs var samþykkt að flétta kvennréttindi inn í stefnuyfirlýsingu flokksins. Með þessu tók flokkurinn stórt skref í átt að því að skilgreina sig sem femínistaflokk. Á landsfundi VG um helgina verður pallborðsumræða um kvennfrelsi og kvennréttindi. Ég er hæstaánægð með þessa dagskrá.

Það eina sem er mér þyrnir í augum er hefð fyrir því að um leið og konur stíga fram og berjast fyrir réttindum sínum stígi á stokk siðapostular sem annað hvort skilur ekki um hvað málið snýst eða kjósa að snúa út úr, breyta orðræðunni og reyna á lúmskinn hátt að reyna að koma í veg fyrir að barist sé fyrir kvennréttindum. Predikun siðapostula er alltaf eins: Við eigum að berjast fyrir jafnrétti ekki kvennréttindum. Með þessu móti er hægt að benda konum á hvað þær séu ótrúlega sjálfsmiðaðar og eigingjarnar að heimta réttindi sér til handa í stað þess að leggja körlum í kreppu hjálparhönd, rannsaka hvað veldur því að ungum drengjum gengur verr í skóla en stúlkum og berjast fyrir auknum umgengnisrétti feðra við börn sín. Með svona orðræðu er hægt að benda konum á að það sé ekki sanngjarnt að þær berjist fyrir eigin hagsmunum umfram hagsmuni annarra.

En er slík gagnrýni sanngjörn? Þegar hreyfihamlaðir berjast fyrir sínum hagsmunum, t.d. um aukið aðgengi, dettur einhverjum í hug að benda þeim á að þeir séu nú heldur eigingjarnir vegna þess að þeir eru ekki að berjast fyrir réttindum lesblindra um leið? Ég efast um að slík gagnrýni þætti sanngjörn og hef mjög sjaldan orðið vör við að slíkar kröfur séu lagðar á aðra hópa en femínista.

Kvennréttindabaráttan er í eðli sínu mannréttindabarátta þar sem einn hópur telur að brotið sé á rétti sínum og krefst breytinga. Það er því að mínu mati engan vegin sanngjarnt að ætla að stilla kvennréttindabaráttu upp sem einhverri andstæðu við jafnréttisbaráttu. Ekki frekar en hægt er að stilla baráttu geðsjúkra fyrir auknum réttindum upp sem andstæðu við baráttu öryrkja. Þó að ákveðinn hópur setji þetta efni á oddinn er ekki verið að segja að hópurinn sé á móti réttindum annarra.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 21st, 2005| icon36 Comments »
Oct 15

Í gær fór ég á forsmekk að árshátíð hjá merkilegasta blakfélagi landsins. Það er a.m.k. eina blakfélagið sem ég veit um sem aldrei hefur komið saman til að spila blak. Allar merkilegust stúlkur bæjarins mættu á staðinn og ég gef skí** í pakk sem segist ekki geta komið og afsakar sig með frámunalélegum afsökunum eins og það sé að fara í sjötugsafmæli afa síns eða sé fast út á einhverri eyju. Eins og það sé eitthvað erfitt að synda frá Eyjum? Kvöldið var mjög skemmtilegt. Við spiluðum eitthvað partýspil og fórum í drykkjuleiki. Það sem toppaði þó allt voru einstakir leiklistarhæfileikar Drífu sem fá allt of sjaldan notið sín.

Við Drífa erum fljótar að para okkur saman í öllum spilum þar sem reynir á leiklistarhæfileika okkar enda höfum við áralanga reynslu í að lesa út úr látbragði hvor annarrar. Frægustu stundir okkar hljóta þó án efa að vera þegar við náðum að leika og giska á Bryndísi Schram, Halldór Laxness og Gorbatchov sama spilið. Geri aðrir betur.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 15th, 2005| icon33 Comments »
Oct 10
DV

Síðasta bloggfærslan mín var víst í DV í dag. Ekki var ég spurð leyfis né látin vita af fyrirhugaðri birtingu. Ég var ekki heldur beðin leyfis fyrir myndinni sem þau birtu af myndasíðunni minni.

En jæja… svona er að vera frægur

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 10th, 2005| icon37 Comments »
Oct 7

Já það var gaman á Októberfest í gær enda varla annað hægt þegar svona skemmtilegt fólk (Háskólalistafólk) kemur saman og drekkur bjór. Toppurinn var svo ósmekklegasta “viðreynsla” sem hefur nokkurn tíman verið reynd við mig:


Tilraun 1:

Gaur: Hvað heitir þú?
Ég: Auður

Tilraun 2 (10 mínútum seinna):
Gaur: Ég kannast svo geðveikt við þig… heitiru nokkuð Auður

Tilraun 3 (20 mínútum seinna):
Gaur: Mikið rosalega ertu með stór brjóst!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 7th, 2005| icon36 Comments »
Oct 5

Helstu fréttir eru að ég er komin í stjórn Vinstri-Grænna í Reykjavík. Ég fékk samtal í síðustu viku frá aðila í uppstillingarnefnd og verð að viðurkenna að ég varð himinlifandi yfir því að þetta fólk kunni að meta það sem ég hef upp á að bjóða. Þrátt fyrir það verð ég á sömu stundu að viðurkenna að ég er ekki hlynnt uppstillingarnefndum. Mér finnst þær ekki lýðræðislegar. Að mínu mati á frekar að skipa kjörstjórn sem auglýsir eftir umsóknum og ef engar koma gæti kjörstjórnin tekið að sér að hringja út í fólk og hvetja það til að bjóða sig fram. Þrátt fyrir að fólk geti boðið sig fram á móti uppstillingu er það erfið barátta og ég man ekki eftir neinu tilfelli þar sem einstaklingur nær kjöri eftir að stillt hafi verið upp.

Annað í fréttum er að Freyja greyið er búin að vera lasin frá því fyrir helgi. Er búin að vera með rosalegt kvef og smá hita, á ógurlega bágt. Í kvöld sofnaði hún út frá grautnum sínum.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 10 5th, 2005| icon3No Comments »