Nov 29

Hér er grein sem ég skrifaði

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 11 29th, 2005| icon32 Comments »
Nov 26

Það er laugardagsmorgunn og ég sit hér og horfi á Cartoon Network með öðru auganu. Freyja er alltaf svo dugleg að koma mér á lappir, vaknar stundvíslega klukkan sjö á hverjum morgni. Það þarf sko ekki vekjaraklukku þegar maður á svona snilling. Hún er orðin ótrúlega dugleg. Skríður út um allt, stendur upp við allt sem hún getur mögulega fengið stuðning af og er alltaf að. Það versta er kannski að hún er ekki jafn góð í að komast niður á réttan hátt svo hún dettur með höfuðið í gólfið c.a. þrisvar sinnum á dag með tilheyrandi drama. Framtennurnar hennar eru komnar í ljós (samtals 4 tennur þá) og hún stækkar ört. Uppáhaldsiðjan dekurdýrsins er þó án efa að elta kisurnar út um allt hús. Þær eru nú ekki alveg á þeirri skoðun að hún sé æskilegur félagsskapur og eru yfirleitt fljótar að láta sig hverfa. Jæja ætli það sé ekki komið í bili? Nýjar myndir hér

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 11 26th, 2005| icon33 Comments »
Nov 24

Ég er dottin í það. Hef horft á 22 Gilmore Girls þættir síðustu tvær vikurnar. Nú er svo komið að nýjasti þátturinn er ekki kominn á netið en ég gef ekki upp vonina og leita að honum margoft á dag. Svo eru sumir sem halda því fram að maður lifi ekki spennandi lífi í fæðingarorlofinu…

Annars vil ég nýta þennan vettvang eins og alla aðra til að auglýsa eftir uppsetjara fyrir U-beygjuna. Tilvalið starf fyrir fólk milli jóla og nýárs. Þekkir ekki einhver einhvern grafískan hönnuð eða nema sem hefði gaman af reynslunni?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 11 24th, 2005| icon31 Comment »
Nov 20

Í gær fór ég í fimmtugsafmæli hjá Oddný frænku (systir pabba). Það vantar aldrei stuðið í kringum uppáhaldsfrænkuna og afmælið var fjörugt eftir því. Vínið flæddi og rauðvínsglasið mitt náði varla að tæmast á milli áfyllinga. Ég og Freyr dönsuðum við nokkur hallærislegustu lög allra tíma og skemmtum okkur vel en náðum samt að vera komin heim á sómasamlegum tíma til að hleypa bestu og sætustu uppáhaldsbarnapíunni okkar heim að sofa.

Á föstudagskvöldið fór ég á Stúdentakjallarann til að hitta blindfulla Stúdentaráðsliða sem voru að koma úr vísindaferð í FS. Þar var dregið í tveggja manna lið og farið í Stúdquiz. Ég lenti með Evu í liði og við stóðum okkur að sjálfsögðu frábærlega. Unnum keppnina ásamt fleirum (man ekki hvort það voru bara tvö lið í efsta sætinu eða fleiri). Það er greinilega gott að para saman Háskólalistaliða og Röskvuliða því Óli og Aggi voru líka sigurvegarar. Við Eva hefðum að vísu unnið einar ef ég hefði staðið fastar á mínu um nafnið á framkvæmdastjóra FS sem ég sit á fundum með nokkrum sinnum í mánuði. Ég er bara svo ónafnglögg að ég treysti öðrum betur en sjálfri mér.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 11 20th, 2005| icon31 Comment »
Nov 20

Hvað er málið með fyrirkomulag dagvistunarplássa fyrir börnin okkar? Ég er að fara á taugum af áhyggjum yfir því að ég verði enn að fresta lokaritgerðinni minni og vera heima með dömunni fram á vor. Mikið er nú gott að kerfið hvetur foreldra, sérstaklega mæður, til að fara aftur út á vinnumarkaðinn…..

Read the rest of this entry »

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 11 20th, 2005| icon3No Comments »
Nov 14

Guðný Ebba kitlaði mig. Mér finnst svona leikir skemmtilegir svo ég hlýði skilyrðislaust.

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
- Klára Mastersgráðuna mína (hljómar þetta nokkuð vonleysislega?)
- Eignast annað barn svo Freyja Sigrún hafi leikfélaga
- Komast í vel launað og skemmtilegt starf
- Fara á Hornstrandir í gönguferð (aftur)
- Læra magadans almennilega
- Hætta að reykja
- Tala mömmu inn á að gefa út ævisögu sína


Sjö hlutir sem ég get gert:

- Samið væmin ástarljóð
- Talað endalaust um stjórnmál
- Hótað manninum mínum með fallbyssukossum
- Verið of sjálfsmeðvituð og velt mér upp úr því sem ég sagði í lengri lengri tíma.
- Eytt heilu dögunum í að horfa á Simpsons og Gilmore Girls
- Vaknað á nóttinni til að dást að barninu mínu sofandi
- Tekið mörg mörg skot af tekíla í röð (eins og Guðný Ebba).

Sjö hlutir sem ég get alls ekki gert:
- Sparað peninga
- Hætt að drekka kók
- Haldið jafnvægi á svelli
- Kveikt á tölvu án þess að kíkja á nokkur blogg
- Drukkið bjór án þess að langa í annan
- Haldið minni skoðun fyrir mig
- Sleppt tækifæri til að koma með kaldhæðin tilsvör

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
- Sjálfstraust
- Gáfur
- Röddin
- Augun
- Húmor
- Hugsjónir
- Hárið

Sjö frægir menn sem heilla:
- Brad Pitt
- George Clooney
- Mickey Rourke
- Sean Penn
- Sean Connery
- Gerard Departieu
- Viggo Mortensen

Sjö orð eða setningar sem ég nota mikið:
- Hvað er klukkan?
- Óvó og nei
- Sígópása?
- Ertu búin að kúka?
- Er pabbi kominn heim?
- Sem sagt
- Ertu þarna?

Sjö hlutir sem ég sé akkúrat núna:
- vatnsglas
- skærappelsínugulu H-tíðindablöðin sem skjótast út úr prentaranum
- steinsofandi kött í hægindastól
- Freyju að týna geisladiska úr hillunni
- Dót út um allt gólf
- leikgrind
- Síma

Og að endingu ætla ég að kitla Drífu, Ella, Lalla , Frey og Ellu Þóru

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 11 14th, 2005| icon31 Comment »
Nov 12

Í dag fór litla fjölskyldan í verslunarferð. Slíkur munaður leyfist sjaldan fjölskyldum með bara eina fyrirvinnu. Planið var að dressa upp Freyju Sigrúnu fyrir veturinn og jafnvel fyrirvinnuna líka. Vinkonur mínar sem eiga börn hafa flestar tjáð mér að það sé “möst” að eiga útiklæðnað frá 66 gráðum norður fyrir afkvæmin. Ég fór því bláeygð og bjartsýn í þá verslun. Eftir svolítið ráp og mjög svo óformlega verðkönnun ákvað ég að fara ekki að ráðum vinkvenna minna. Þvílíkt okurverð á pínulitlum ungbarnaflíkum! Við enduðum svo með að kaupa nákvæmlega eins galla, bara ekki sama merki, á öðrum stað fyrir c.a. 8 sinnum minna verð.

Eins og það er nú gaman að fá föt (og sérstaklega kaupa föt á litlu skvísuna) þá er það jafn leiðinlegt að skoða og versla. Kannski eins gott að maður sé alltaf skítblankur.

Bömmer dagsins er svo að hafa þurft að henda 150 eintökum af nýjustu H-tíðindum sem ég var búin að prenta út og brjóta vegna frekar bjánalegrar villu. Ætli morgundagurinn fari ekki í endurprentun?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 11 12th, 2005| icon31 Comment »
Nov 7

Á laugardaginn fór fjölskyldan á landsráðstefnu SHA. Ráðstefnan var bara skemmtileg, góðar tillögur að ályktunum komu fram og a.m.k. tvær atkvæðagreiðslur unnust (eða töpuðust) með einu atkvæði. Slíkt gefur því óneitanlega gildi að hafa drullað sér á staðinn þrátt fyrir einlægan vilja til þess að vera sófaklessa enn einn laugardaginn.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 11 7th, 2005| icon31 Comment »
Nov 7

Í síðustu viku fór ég sem áhorfandi á Pub Quiz í Stúdentakjallaranum. Freyr og Elli voru saman í liði. Þeir urðu í öðru sæti, töpuðu fyrir sigurvegurunum með einu skitnu stigi. Ef bara þeir hefðu munað eftirnafn Ridge í Bold and the Beautiful sem er að sjálfsögðu Forrester. Nokkrum vikum áður vorum við Elli saman í liði og töpuðum þá (eða urðum í öðru sæti) fyrir sömu mönnum, þá með tveimur stigum. Mér skilst að þessir menn sem við sleikjum hælana á í hvert skipti séu í áskrift að vinningi í Pub Quizinu. Ég er viss um að þeir svindla, eru sennilega í stjórn Röskvu eða hafa eitthvað djúsí á stjórnarmeðlimi sem veitir þeim vald til að nálgast spurningarnar fyrirfram. Og nei! ég er ekki tapsár.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 11 7th, 2005| icon3No Comments »
Nov 1

Þá er víst kominn nóvember. Allt í einu er kominn vetur og stúlkan mín orðin rúmlega sjö mánaða gömul. Með tímanum koma breytingar og framfarir hjá erfingjanum og eins og sönn móðir verð ég að monta mig af því nýjasta. Stúlkan er nefnilega farin að skríða.

Fyrstu skrefin (á hnjánum) tók hún á Kvennafrídeginum í átt að rauðum bíl sem Drífa egndi fyrir hana sem agn. Með hverjum deginum verður hún styrkari í viðleitni sinni og er nú farin að skríða út um allt hús. Það vinsælasta er þó að skríða að öllum þeim fáranlega illa staðsettu innstungum sem finnast í íbúðinni.

Í tilefninu skellti ég inn örfáum myndum sem má sjá hér.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 11 1st, 2005| icon31 Comment »