Kitluð

Guðný Ebba kitlaði mig. Mér finnst svona leikir skemmtilegir svo ég hlýði skilyrðislaust.

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
- Klára Mastersgráðuna mína (hljómar þetta nokkuð vonleysislega?)
- Eignast annað barn svo Freyja Sigrún hafi leikfélaga
- Komast í vel launað og skemmtilegt starf
- Fara á Hornstrandir í gönguferð (aftur)
- Læra magadans almennilega
- Hætta að reykja
- Tala mömmu inn á að gefa út ævisögu sína


Sjö hlutir sem ég get gert:

- Samið væmin ástarljóð
- Talað endalaust um stjórnmál
- Hótað manninum mínum með fallbyssukossum
- Verið of sjálfsmeðvituð og velt mér upp úr því sem ég sagði í lengri lengri tíma.
- Eytt heilu dögunum í að horfa á Simpsons og Gilmore Girls
- Vaknað á nóttinni til að dást að barninu mínu sofandi
- Tekið mörg mörg skot af tekíla í röð (eins og Guðný Ebba).

Sjö hlutir sem ég get alls ekki gert:
- Sparað peninga
- Hætt að drekka kók
- Haldið jafnvægi á svelli
- Kveikt á tölvu án þess að kíkja á nokkur blogg
- Drukkið bjór án þess að langa í annan
- Haldið minni skoðun fyrir mig
- Sleppt tækifæri til að koma með kaldhæðin tilsvör

Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
- Sjálfstraust
- Gáfur
- Röddin
- Augun
- Húmor
- Hugsjónir
- Hárið

Sjö frægir menn sem heilla:
- Brad Pitt
- George Clooney
- Mickey Rourke
- Sean Penn
- Sean Connery
- Gerard Departieu
- Viggo Mortensen

Sjö orð eða setningar sem ég nota mikið:
- Hvað er klukkan?
- Óvó og nei
- Sígópása?
- Ertu búin að kúka?
- Er pabbi kominn heim?
- Sem sagt
- Ertu þarna?

Sjö hlutir sem ég sé akkúrat núna:
- vatnsglas
- skærappelsínugulu H-tíðindablöðin sem skjótast út úr prentaranum
- steinsofandi kött í hægindastól
- Freyju að týna geisladiska úr hillunni
- Dót út um allt gólf
- leikgrind
- Síma

Og að endingu ætla ég að kitla Drífu, Ella, Lalla , Frey og Ellu Þóru

One Response

  1. Þórunn Gréta Says:

    Eftir þennan lestur sannfærðist ég endanlega um að ég er með dyslexíu. Ég las “Hótað manninum mínum með fallbyssuskotum” og hugsaði sem svo “Jahérnahér, svo bregðast krosstré sem önnur tré, bara sprungur í fyrirmyndarhjónabandinu….” Mig rámar reyndar í það þegar systir mín bjó í bumbu móður minnar hvað ég hlakkaði til að fá leikfélaga… en svo var ekkert hægt að leika við hana af því hún kunni ekki að labba og ekki heldur að tala! Engin smá vonbrigði.