Dec 26

Litla fjölskyldan mín hefur það gífurlega notalegt í sveitinni. Hér er kyrrð og fallegt veður. Það snjóaði í nótt. Þegar litið er út um gluggann sjást greinar svigna undan þykkum snjónum og rétt glittir í ljós á næstu bæjum. Í gærmorgun vöknuðu við og fengum heitt kakó með rjóma og smákökur í morgunmat. Ég held barasta að það verði ekki mikið jólalegra.

Freyja Sigrún fékk ógrynnin öll af jólapökkum. Þessi auknu efnislegu gæði hafa þó ekki náð að spilla henni því hún eyðir mestum tíma í að tína eldgamla legókubba upp úr fötu og dreifa þeim út um öll gólf eða leika sér með plastílát og lok af krukku. Ætli það sé ekki sniðugra að pakka inn tómum kössum næst þegar maður á svona kríli um jól? Kassarnir voru a.m.k. að slá meira í gegn en innihaldið.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 12 26th, 2005| icon31 Comment »
Dec 21

Eftir sprautu með stærstu nál sem ég hef séð á ævinni, fjölmargar parkódín forte og vöðvaslakandi er ég farin að geta staulast um húsið aftur. Ég var að hengja upp þvott og fékk þursabit dauðans - greinilega stórhættuleg iðja sem á að forðast í lengstu lög.

Markmiðið er að láta sér batna fyrir aðfangadag svo ég geti setið í bíl í þrjá til fjóra tíma á leiðinni í sveitasæluna. Drífa var að passa mig og Freyju í dag og ég er að reyna að plata hana í sömu iðju á morgun. Þeir sem vilja koma og taka til, passa Freyju, hengja upp þennan stórhættulega þvott eða eitthvað annað eru hjartanlega velkomnir á Guðrúnargötu 7.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 12 21st, 2005| icon31 Comment »
Dec 15

Áðan var ég á undirbúningsfundi fyrir Finnlandsferðina sem verður farin 3-10. janúar. Ég hlakka SVO til. Eini gallinn við ferðina er að ekki gefst kostur á að stoppa neinsstaðar og versla föt sem ég þarfnast sárlega eftir að kílóin fóru loksins að yfirgefa mig. Ég neyðist því sennilega til að vinna upp kílóin um jólin svo ég passi aftur í allar buxurnar mínar. Það verður nú ekki erfitt verkefni á Flugumýrarhvammi þar sem maður vaknar og fær sér mjólkurglas og smákökur ala systa.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 12 15th, 2005| icon32 Comments »
Dec 15

Ef dóttir mín fengi indjánanafn væri það án efa “hún sem týnir bækur úr hillum”. Algjör eftirlætisiðja hennar er að standa upp við bókahilluna og týna hverja bókina á fætur annarri út og henda á gólfið. Þegar hún er komin með vænan stafla hlammar hún sér svo aftur niður og fer að tæta í bunkanum. Ég er ekki frá því að hún sé nokkuð öflug í þessu - er þegar búin að rífa kjölin utan af einhverri Karl Marx bókinni hans Freys, heila opnu úr aðferðabók sem ég á, baksíðuna af bók eftir Svan Kristjáns og míga ofan á bók um hagfræðikenningar Karl Marx.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 12 15th, 2005| icon33 Comments »
Dec 13

Mikið var nú ánægjulegt að fá símtal frá dagmömmunni sem við vorum búin að festa okkur pláss hjá þar sem hún tilkynnti að hún væri hætt við að gerast dagmamma.

Sérstaklega í ljósi þess að við bókuðum plássið hjá henni, þrátt fyrir að hún byggi upp í Breiðholti og væri með lélega aðstöðu, af því að hún var sú eina lausa sem við fundum frá og með áramótum.

Ég er að verða BRJÁLUÐ á ástandinu. Ekkert laust og ekkert að losna þrátt fyrir að ég hafi skráð mig á lista hjá fullt af dagmömmum í júlí!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 12 13th, 2005| icon33 Comments »
Dec 11

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og..

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!

Og koma svo

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 12 11th, 2005| icon340 Comments »
Dec 8

Ég get nú ekki annað sagt en greyið ríkisstjórnin. Þetta svar Stefáns Ólafssonar við róg heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og fjármálaráðuneytisins er satt að segja stórskemmtilegt aflestrar. Ég mæli með því að allir lesi það enda er það ábyggilega góð afþreying í prófalestrinum - kætir, hressir og bætir.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 12 8th, 2005| icon31 Comment »
Dec 6

Ég var að lesa á Moggavefnum að Íslandsbanki hefði sent námsmannalínufélögum sínum brúnkuklúta í pósti núna fyrir prófin. Markmiðið var víst að vekja hlátur og styðja námsmennina sína í prófum. Ég vildi að ég hefði fengið brúnkuklúta, þá myndi ég eflaust koma mun meira í verk auk þess að ég myndi þá ekki vera svona föl og ljót. Talsmaður bankans segir að þeim hefði aldrei dottið í hug að viðbrögðin myndu vera á þann veg að fólk tengdi sendinguna skilaboðum um útlitsdýrkun og er miður sín yfir þessu. Ég held í alvöru talað að ef svo er ætti Íslandsbanki að ráða sér nýja ímyndarráðgjafa!

Read the rest of this entry »

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 12 6th, 2005| icon33 Comments »