Jan 31

Mér var bent á að ég hefði gert afdrifarík mistök í fyrra, þ.e. gleymt aðalkosningunum sem eiga að fylgja Stúdentaráðskosningunum samkvæmt hefð. Slíkt mun ekki gerast aftur enda um mjög mikilvægt málefni að ræða, að kanna skoðanir kjósenda á karlkosti kosninganna.

Kjósið hér til hliðar.

_________________________________________________________________________________

VIÐBÓT

Ef ég vissi ekki betur, þ.e. þekkti rómaðan heiðarleika Ella og Agga, myndi ég halda því fram að þeir sætu á skrifstofunni, hlið við hlið að kjósa sjálfa sig allan daginn. En eins og sagði í listakynningunni um Ella er hann maðurinn sem aldrei þarf að kjósa sjálfan sig. Það er nokkuð ljóst að karlpeningurinn í Röskvu og Háskólalistanum ber af. Ætli ég gefi ekki könnuninni pínu tíma í viðbót.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 31st, 2006| icon34 Comments »
Jan 28

Í gær var listakynning Háskólalistans á Stúdentakjallaranum. Hér getið þið séð fallega fólkið. Eftir listakynninguna var að venju haldið af stað í sumarbústaðarpartý. Þetta árið var haldið í átt að Laugarvatni. Fyrri hluti ferðarinnar gekk vel. Þegar við vorum komin nálægð (þ.e. eftir því sem við héldum) var komin svarta þoka og leiðsögukonan okkar þekkti leiðina eftir sjónminni. Við þvældumst því fram og til baka sama afleggjarann í 40. mínútur með hausinn út um gluggann í leit að hinum og þessum kennileitum. Að endingu tókst okkur þó að rata á réttan stað, með hjálp góðra sveitunga sem bjuggu á sveitabæ á afleggjaranum. Við kíktum víst tvisvar í heimsókn til þeirra.

Sumarbústaðarpartýið var æðislegt enda ekki við öðru að búast með svona skemmtilegu fólk í kringum sig. Við náðum m.a. að troða okkur fjórtan í fjögurra manna heitapott - geri aðrir betur. Hér eru myndir af hvoru tveggja.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 28th, 2006| icon33 Comments »
Jan 26

Ég kemst víst ekki hjá því að vara lesendur mína við því að kosningabaráttan í HÍ er byrjuð. Ég virðist eiga við sjúkdóm að stríða og get ekki dregið mig út úr baráttunni. En þar sem þetta er að öllum líkindum síðasta árið mitt í Háskólanum lofa ég bót og betrun.

Read the rest of this entry »

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 26th, 2006| icon35 Comments »
Jan 19

Í gær náði samviskubitið mitt yfirhendinni og þvingaði mig til að segja vini mínum frá því hvað ég hafði gert á hans hlut fyrir skömmu. Uppátæki sem hljómaði virkilega fyndið og spontant á þeim tímapunkti sem það átti sér stað en hræðilegt um leið og rann af manni. Hann var fúll og reiður út í mig en heldur þó vissri virðingu fyrir mér því ég gerði syndaaflausn.

Lærdómur dagsins: Ekki kjafta frá ….. eða hvað?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 19th, 2006| icon34 Comments »
Jan 19

Ég er búin að fara á fundi alla daga vikunnar, stundum tvo á dag. Ég held að maðurinn minn dauðsjái eftir þeirri ákvörðun sinni að draga sig út úr ungliðastarfi VG til að geta eytt meiri tíma heima hjá mér og Freyju….. o jæja - hann hefur þó a.m.k. Freyju til að halda sér félagsskap.

Ég fór á Rösquiz í gær en vann ekki eins og venjulega heldur var nálægt því. Ég og Drífa vorum þó þrusugóðar í sjónvarpsþáttaþemanum, ég kom sjálfri mér bara á óvart með þarflausri þekkingu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 19th, 2006| icon31 Comment »
Jan 18

ER ÉG!!!

Ég upplifði mig a.m.k. sem sanna hetju eftir að ég skipti um dekk í slyddunni, alein, með Freyju sofandi inn í bíl rétt við Sæbrautina.

Drífa kom á síðustu stundu og skemmdi næstum því planið því að sjálfsögðu stöðvaði enginn fyrir ofurkvennmanni eins og mér og bauðst til að hjálpa en þegar Drífa kom og veitti mér andlegan stuðning snarbremsuðu að sjálfsögðu bílarnir. Ætli Drífa líti svona ílla út séð úr bíl - veikluleg og aum? Það hlýtur að vera. Ég túlka þetta a.m.k. ekki sem diss á útlit mitt eða persónutöfra….

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 18th, 2006| icon38 Comments »
Jan 16

Haldið þið ekki að litla snúllan mín sé bara komin með dagmömmu! Eftir allan þennan tíma var ég eiginlega búin að gefa upp alla von en í gær hringdu þrjár dagmömmur til að bjóða okkur pláss. Í morgun fórum við svo að skoða og þurfum virkilega að pæla til að geta valið á milli því allir staðir voru frábærir. Við enduðum á því að taka pláss upp í Breiðholti, í Ferjubakka, hjá yndislegri stelpu sem er með þrjú önnur börn, þar af eitt eigið. Við þurfum ekkert að vesenast með vagninn fram og til baka því stelpan getur bara sofið inni og þetta er “nánast” í leiðinni í vinnuna til Freys þannig að hann getur farið með stelpuna og sótt hana. OG Freyja byrjar barasta í aðlögun á morgun.

Þið getið ekki trúað því hvað þetta er mikill léttir fyrir mig að geta loksins farið að spá í MPA ritgerðina mína af einhverri alvöru. Námslokum er því ekki frestað í bili.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 16th, 2006| icon34 Comments »
Jan 14

Í gær var ég orðin hrikalega spennt yfir því að komast heim til Freyjunnar minnar og hitta loksins fallega manninn minn. Þegar ég vaknaði í morgunn var það með bros á vör. Ég lá í hlýjunni af einum litlum líkama og einum stórum.

Freyja var þó ekkert á því að sýna af sér óstöðvandi kæti yfir því að mamman væri komin heim. Hún horfði á mig með stóískri ró og hélt svo áfram að naga merkimiðann á ferðatöskunni. Það var eins og hún þyrfti nokkrar mínútur til að melta að þetta væri raunverulega ég. Eftir það mátti sjá frábær viðbrögð.

Freyr sem er búinn að skrifa margar söknuðarræður á bloggið sitt hefur þó nýtt tímann vel meðan ég var fjarri. Barnið mitt er heilaþvegið. Áður en ég fór sagði Freyja í sífellu ma-ma-ma-ma og mamma. Í dag segir hún einungis pa-pa-pa. Þvílík tilviljun (segir maðurinn minn) en mig grunar að baki breytingunni liggi mikil þjálfun.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 14th, 2006| icon33 Comments »
Jan 12

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 12th, 2006| icon3No Comments »
Jan 11

jaeja tha er madur komin til Køben. Erla og Drifa toku a moti mer i flugvellinum og skemmtu ser hid besta vid ad gera grin ad astandi minu. I dag svafum vid ut og tokum svo helminginn af Strikinu adur en vid gafumst upp. Eg held eg hafi c.a. 2-3 tima thol i budarrap og er samkvamt tvi lelegur kvennmadur.

Ferdin til Finnlands var aedisleg. Hopurinn sem var uti nadi otrulega vel saman og humorinn hja okkur var surari en allt surt. Aetli nidurstadan se ekki su ad kona se buin ad eignast enn nanari vini og styrkja sig til muna i politikinni. En bonusinn var svo øll skemmtunin.

Thad er stelpa ad bida eftir tølvunni minni thannig ad eg kved i bili.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 11th, 2006| icon3No Comments »

« Previous Entries