Feb 28

Í gær ákvað ég að hætta að reykja. Ég veit að sumum finnst það ekki merkilegt en nú er komið hádegi og ég sit hérna á reyklausu kaffihúsi ótrúlega sátt við ákvörðun mína enn ekki búin að falla né einu sinni íhuga það. Ég hef hætt að reykja alveg merkilega oft og furða mig því ekkert á því að fólk flissi þegar ég tilkynni reykbindindi enn einn ganginn. Í þetta sinn þætti mér þó vænt um að fólk styddi mig og hvetti mig áfram í stað þess að gera grín að fyrri mistökum í þessum efnum.

Ég var annars að spjalla við vin minn á msn-inu í gær þar sem við fórum að ræða kosti og galla fólks út frá fyrri færslunni hér að neðan (Blaut tuska). Hann sagði mér að ég hefði verið óþarflega köld við að telja upp galla sumra og ég þræti ekkert fyrir það. Til að jafna metin hef ég ákveðið að henda blautri tusku í andlitið á sjálfri mér og telja hér upp mínu helstu galla að eigin mati. Tilgangurinn er svo að reyna að bæta mig, hætta sumu, breyta öðru.

Read the rest of this entry »

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 28th, 2006| icon321 Comments »
Feb 26

Ég mæli eindregið með að þið lesið smásöguna hennar Drífu um Rökkva og Valla.

snilld!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 26th, 2006| icon3No Comments »
Feb 25

Ég fór á rölt niður í bæ í gær með mágkonu minni. Við settumst niður í kollu á Celtic Cross sem er svo sem ekki frásögu færandi nema kunningi hennar, kallaður Steini bögg, kom til okkar og byrjaði mjög ómálefnalega umræðu um femínista. Ég er þekkt fyrir flest annað en að leyfa fólki að vaða uppi með svívirðingar og fullyrðingar sem enginn fótur er fyrir þannig ég svaraði honum fullum hálsi. Greyið drengurinn er víst svo leiðinlegur að allir eru hættir að nenna að svara honum þannig að honum brá frekar mikið við þessa frekju mína, þ.e. að ég vogaði mér að svara honum og biðja hann að rökstyðja mál sitt. Hann gat að sjálfsögðu ekki svarað og endaði með því að þykjast sjá villu vegar síns og segja að ég væri góður femínisti. Raunveruleikinn var samt allt annar, honum fannst ég ekkert góð og sýndi mér það skömmu síðar með að slá mig utan undir þegar ég vogaði mér að reyna að tala við Steinunni sem sat við hliðin á honum. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er lamin á djamminu en engu að síður brást ég vel við og útskýrði fyrir drenginum að svona gerði maður einfaldlega ekki. Ætli hann hafi ekki skammast sín örlítið fyrir þetta, allavega bauð hann mér í sífellu að slá sig til baka. Ég sagðist ekki sjá neinn tilgang í því og útskýrði að ég væri ekki eingöngu illur femínisti heldur líka friðarsinni og þ.a.l. á móti ofbeldi. Greyið drengurinn, ég held ég hafi náð að ofbjóða honum endanlega með þessum orðum a.m.k. rauk hann í burtu og lét ekki sjá sig meira.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 25th, 2006| icon34 Comments »
Feb 25

Hinir fornu fjendur í stúdentapólitíkinni Vaka og Röskva, neyðast til að fallast í faðma eftir kosningar til stúdentaráðs þar sem félögin fengu jafn marga fulltrúa kjörna. Háskólalistinn náði oddamanni. Vaka og Röskva virðast deila andúð sinni á Háskólalistanum og kjósa því samstarf frekar en að nota H-listann til þess að halda höfuðandstæðingum út í kuldanum. H-listafólk grætur þessa niðurstöðu þó þurrum táum enda þykir því staðfest sambúð Vöku og Röskvu styrkja málflutning sinn, sem gengur ekki síst út á það að enginn raunverulegur málefnaágreiningur sé á milli fjendanna fornu í stúdentapólitíkinni. Þetta breytir því þó ekki að fólk þykist sjá maðka skríða í samrunasúpunni þegar kemur að skiptingu í veigamestu embættin. Ákveðið hefur verið að Sigurður Örn Hilmarsson, oddviti Vöku, verði fomraður Stúdentaráðs en Ásgeir Runólfsson, oddviti Röskvu, verður framkvæmdastjóri ráðsins. Þessi helmingaskipti eru í anda “stóru strákanna” við Austurvöll, þar sem “alvöru pólitík” er stunduð af miklum móð, en stríðir hins vegar gegn lögum um Stúdentaráð Háskóla Íslands, þar sem skýrt er kveðið á um að starf framkvæmdastjóra Stúdentaráðs skuli auglýsa og ráða í það á faglegum forsendum. Þess vegna er nú hvíslað á göngum Háskólans að Vaka og Röskva ætli einfaldlega að breyta lögunum til þess að koma “skiptidílnum” á koppinn. Þá á eftir að greina frá því hvernig framboðslistanir þrír muni skipta á milli sín fulltrúum hinna ýmsu nefnda. Sagan segir að Háskólalistinn fái aðeins tvo fulltrúa í nefndum Stúdentaráðs þó að fjöldi atkvæða sem listinn fékk í kosningunum ætti að tryggja honum þrjá til fjóra nefndarfulltrúa. Þar fyrir utan telur H-listafólk víst að fulltrúarnir þeirra tveir fái sæti í léttvægum nefndum og þeim verði haldið utan allra “alvöru” nefnda sem fjalla um þau hagsmunamál stúdenta sem helst eru í brennidepli.

Undir þetta skrifar ÞÞ - Veit einhver hver það er?
Grein í Fréttablaðinu 25. febrúar bls. 62.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 25th, 2006| icon32 Comments »
Feb 23

Ég fór á skiptafund Stúdentaráðs rétt eftir hádegi í dag. Sumt verður maður einfaldlega að sjá með eigin augum. Það að Vaka og Röskva myndi meirihluta saman fellur undir þann flokk! Allir voru ofboðslega glaðir, sáttir og sammála. Allar tillögur voru samþykktar einróma. Já stundum er lífið gott.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 23rd, 2006| icon3No Comments »
Feb 21

En leikurinn er sem sagt svona: Feitletraðu þær sem þú hefur lesið, yfirstrikaðu þær sem þú gerir ekki ráð fyrir að lesa, skáletraðu þær sem þú vonast til að lesa einhvern tímann og undirstrikaðu þær sem þú ert alveg að fara að lesa eða ert byrjuð/byrjaður að lesa.

Read the rest of this entry »

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 21st, 2006| icon35 Comments »
Feb 21

Fann næsta snilldarleikinn sem á eftir að ríða bloggveröldinni á síðu hjá einhverjum Röskvuliðanum.

Skrifið nafnið ykkar í kommentakerfið og ég mun segja ykkur eitthvað þrennt neikvætt/þrjá galla við ykkur.

Svo er bara að sjá hver þorir….

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 21st, 2006| icon334 Comments »
Feb 19

Ég var að taka til í linkalistanum mínum. Ætli ég hafi ekki að venju gleymt svona hér um bil helmingnum …. endilega látið mig vita í kommentakerfinu ef þið viljið fá link. Þeir sem eru í RSS molunum mínum fá ekki aukalink.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 19th, 2006| icon35 Comments »
Feb 19

Ég var að skoða tölfræðina úr prófinu sem ég lagði fyrir lesendur mína um daginn. Niðurstaðan kemur frá 16 vinum og ættingjum svo hún ætti a.m.k. að gefa mér góða vísbendingu um hvernig ég kem öðrum fyrir sjónir. Ég fæ að vísu enga afgerandi niðurstöðu. Eina lýsingarorðið sem er notað um mig af 50% svaranda er klár (clever) aðrar lýsingar dreifast meira. Það er samt ótrúlega gaman að skoða þetta því mörg orð sem fólk notar til að lýsa mér eru orð sem ég hefði aldrei notað til að lýsa sjálfri mér hvað þá talið að aðrir litu á mig sem t.d. káta (37%), kraftmikla (25%) eða kræfa/hugrakka (25%)(bold).

Ekki það að ég sé óánægð með niðurstöðuna, þvert á móti er ég frekar stolt yfir þessari fallegu sýn sem vinir mínir hafa á mér.

Read the rest of this entry »

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 19th, 2006| icon3No Comments »
Feb 18

Þarf að segja meir?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 18th, 2006| icon3No Comments »

« Previous Entries