Ég þoli það ekki að vera slöpp, án þess þó að geta réttlætt leti og aðgerðarleysi með því að vera löglega veik, bara slöpp.
Mér var meira að segja boðið í bíó í gær og ég sagði hiklaust já en endaði með því að afþakka seinna um kvöldið þar sem ég gat ekki fengið mig til að taka mig til fyrir að fara út úr húsi. Enda fór ég að sofa rétt eftir níu. Þetta stendur þó allt til bóta. Ég vaknaði um sjöleytið í morgunn og er að fara í annað viðtalið mitt vegna MPA ritgerðarinnar rétt fyrir hádegi. Svo verð ég vonandi nægilega fersk til að pikka það inn, ásamt því fyrra, eftir hádegi.
Svo langar mig að hvetja alla til að mæta á fund í kvöld. Í kvöld verður Svandís Svavarsdóttir, borgarstjóraefni VG á fundi í mínu hverfi og allir æstir aðdáendur mínir geta búist við að sjá mig þar ef ég fæ pössun fyrir Freyjuna mína.