Apr 28

þetta er málið!

FLYER_5.JPG

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 04 28th, 2006| icon34 Comments »
Apr 25

Í dag
* þvoði ég ógeðslega mikið af þvotti, hengdi upp, braut saman og setti á sinn stað
* gekk ég á milli Kvennaskólanema með pólitískan áróður
* vann ég mikið fyrir ungliða á kosningamiðstöð VG
* tók ég til í eldhúsinu (löngu tímabært)
* sorteraði ég og taldi flöskur og dósir
* fór ég í Sorpu og skilaði fullum bílfarmi af dósum, blöðum og tímaritum

Niðurstaðan er semsagt enn einn dagur, ekki einn einasti aukastafur í ritgerðinni sem á víst að skila til skrifstofu Félagsvísindadeildar 12. mai næstkomandi. Ætli þau leyfi mér að skila seinna því ég er svo upptekin í kosningabaráttu og heimilisstörfum?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 04 25th, 2006| icon3No Comments »
Apr 25

Mig vantar svoleiðis forrit í tölvuna mína. Hver ætlar að redda mér því?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 04 25th, 2006| icon34 Comments »
Apr 25

Elli veit leyndarmál. Hann gerir alltaf grín að mér fyrir að vera forvitnasta manneskja á jörðinni. Þvílíkar aðdróttanir! Mig langar ekkert að vita leyndarmálið hans og ætla ekkert að velta því fyrir mér meira, hvað þá spyrja hann út í það.

Hann getur bara haldið þessu í sér þangað til hann springur og hananú!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 04 25th, 2006| icon3No Comments »
Apr 25

Ég er búin að taka öll viðtöl sem ég á að taka fyrir lokaverkefnið mitt. Um páskana setti ég svo síðustu spóluna í tækið til að afrita viðtalið inn á tölvuna. Sigri hrósandi kveikti ég á tækinu og mundaði fingurna fyrir ofan lyklaborðið.

Ég var ekki jafn glöð þegar í ljós kom að spólan sem besta viðtalið mitt átti að vera á var ónýt. Þar sem átti að vera klukkutíma samtal heyrðust einungis fimm setningar.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 04 25th, 2006| icon32 Comments »
Apr 24

Af hverju ertu svona blá?
Jú vegna þess að það er verið að nauðga mér

Þetta var auglýst á dreifildi Ungra Sjálfstæðismanna fyrir opnun kosningamiðstöðvar þeirra.

Hver ætli sé meiningin með þessu? Ætli þetta eigi að vera fyndið eða? Mér finnst þetta svo ósmekklegt að ég veit eiginlega ekki hvort ég á að hlæja eða gráta.

_________________________________________________________________________________________
Viðbót 25. apríl 2006 : Fyrir þá sem veltu því fyrir sé hvort ég væri að grínast þá er svarið nei. Til að ýkja áhrifin bætti ég þó við seinni setningunni, enda þekkja flestir tilvitnunina og þá hvert samhengi hennar er. Ég leiðrétti þetta því núna og vona að hæstvirtir SUS-arar sem hafa boðað bókun fyrirgefi mér þennan gjörning.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 04 24th, 2006| icon311 Comments »
Apr 23

Freyja át hafragraut í morgunn. Það er í fyrsta skipti síðan á miðvikudagsnóttina sem hún vill borða eitthvað og það sem meira er heldur því niðri. Þetta eru því búnir að vera skemmtilegir dagar á Guðrúnargötunni. Ég er búin að skipta um föt á mér og henni á nokkura tíma fresti, fara í sturtu með krílinu nokkrum sinnum á dag, skipta um ótal bleyjur og þurka upp óteljandi ælupolla. Freyr er svo búinn að vera á fullu inn í þvottahúsi. Ég satt að segja hef aldrei séð Freyjuna mína svona lasna. Það er frekar óhugnalegt að halda á svona litlum líkama sem kúgast klukkutímum saman en hefur engu til að æla. Ég hef fengið svona pestir en aldrei hef ég haft svona pest í marga daga í röð. Ætli ég myndi ekki hringja á sjúkrabíl ef ég héldi ekki niðri vatni eða gæti ekki borðað þrjá daga í röð. En nú virðist hún loksins vera að komast yfir þetta og liggur sofandi í fanginu á pabba sínum eftir að hafa borðað grautinn og drukkið pela.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 04 23rd, 2006| icon32 Comments »
Apr 18

Ég fann enga barnapíu/gæja til að sitja yfir Freyju meðan Freyr stundar fótbolta og missti því af ljóðakvöldinu sem mig langaði svo mikið á.

Ég treysti því bara að drengirnir sem ég þekki flytji ljóðin fyrir mig næst þegar ég hitti þá yfir bjór.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 04 18th, 2006| icon32 Comments »
Apr 16

Einn af föstu liðunum í langferðum hjá okkur hjónunum er leikurinn - Hver er maðurinn (reyndar leyfum við dýr og ýmislegt annað líka). Ótrúlega hallærislegt en við náum þó allavega að halda þeim sem er að keyra vakandi. Við náum sífellt að koma hvort öðru á óvart í þessum leik, þrátt fyrir að hafa leikið hann svona nokkur hundrað sinnum of oft. Í ferðinni norður að þessu sinni var leikurinn einstaklega skemmtilegur.

Ég: Hei! ég veit
Freyr: Ok…. Er þetta maður?
Ég: Nei
Freyr: Kona?
Ég: Nei
Freyr: Er þetta dýr?
Ég Já
Freyr: Er þetta Nappi?
JÁ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Saman: Nappi ekki nappa

Á svona stundum furða ég mig ekkert á því að ég og Freyr enduðum saman.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 04 16th, 2006| icon36 Comments »
Apr 13

Leiðinlegur leikur af síðunni hennar Steinunnar:

Read the rest of this entry »

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 04 13th, 2006| icon3No Comments »

« Previous Entries