May 29

Árangur Vinstri grænna á landsvísu var stórkostlegur og fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég trúi ekki öðru en við vinnum stórsigur í Alþingiskosningunum að ári.

Árangurinn í Reykjavík var sömuleiðis góður en það er óneitanlega svekkjandi að horfa upp á ríkisstjórnina taka við í ráðhúsinu. Ekki hélt ég að Framsóknarflokkurinn tæki sjálfviljugur þátt í því að negla síðustu naglana í líkkistu sína. Sorglegast finnst mér að hugsa um væntanleg örlög Orkuveitu Reykjavíkur undir stjórn þessara tveggja flokka.

Merkilegast finnst mér þó vælið í honum Ólafi F……. Magnússyni sem fékk bara nákvæmlega sömu útreið og hann veitti öðrum. Vilhjálmur lét hann bíða meðan hann samdi við aðra en áður hafði Ólafur svikið Svandísi, Björn Inga og Dag um stefnumót meðan hann spjallaði við Villa. Ég vona að Ólafur sé glaður með sitt framlag og taki vel á móti ríkisstjórninni í ráðhúsið.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 29th, 2006| icon35 Comments »
May 27

Er búin að merkja x við Vaffið. Í kvöld er það svo kosningavaka í Ýmishúsinu þar sem fylgst verður með því hvort að aðrir Reykvíkingar hafa gert hið sama. Endilega mætið!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 27th, 2006| icon3No Comments »
May 27

Nú tekur biðin við. Ég hef samt nóg að gera. Hér á Suðurgötunni er fullt af fólki að njóta veitinga og ég sit við símann að leiðbeina fólki hvar það á að kjósa.

Kjósið rétt! en umfram allt KJÓSIÐ

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 27th, 2006| icon3No Comments »
May 26

Nefndu mér einhverja konu sem hefur jafn víðtæka reynslu til að vera stjórnmálaskýrandi og Egill Helgason svaraði maðurinn þegar spurt var af hverju eintómir karlar væru í settinu í kosningarúnt NFS. Að því loknu bætti hann við að engin kona hefði álíka reynslu.

Ætli honum hafi aldrei dottið í hug að til þess að öðlast reynslu og viðurkenningu á þessu sviði þarf að byrja á því að að hleypa kvennmanni að!

Mín hugmynd að fléttulista fellur ekki að hugmynd Sigmundar Ernis, þ.e. fimm karlmenn að tala um pólitík, þó að annar spyrillinn í settinu sjálfu sé með slétt hár en hinn með krullað.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 26th, 2006| icon37 Comments »
May 25

Svandís Svavarsdóttir, uppáhalds frambjóðandinn minn, er alltaf að monta sig af því að tilheyra eina nútímalega stjórnmálaflokknum. Það mátti því ekki fyrr vera að VG sé kominn með styrktarsíma. Þeir sem hringja í 904-1000 eru með símtali sínu að styrkja kosningabaráttu okkar í Reykjavík um 1000 kr. Einnig er hægt að hringja í 904-3000 og 904-5000. Ógeðslega töff!

Þeir sem ætla að skemmta sér með mér á kosninganótt mæta svo í Ýmishúsið (skrýtna karlakórshúsið á horni Bústaðarhlíðar og Lönguhlíðar) eftir að kjörstöðum lokar á laugardagskvöldið. Þar verður að sjálfsögðu aðalstuðið. Það eru engar afsakanir fyrir því að mæta ekki til að fagna með besta frambjóðandanum (MÉR), ekki einu sinni að maður sé ennþá í prófum.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 25th, 2006| icon31 Comment »
May 23

Fallegu Dreifiritin frá VG í Reykjavíik (ýta á hvert fyrir sig til að sjá þau stærri)

Um skipulagsmál

Málefnaáherslur VG í Reykjavík

Og rúsínan í pylsuendanum grein Svandísar Svavarsdóttur Tónlist umlykur allt

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 23rd, 2006| icon33 Comments »
May 23

Kosningahátíð VG í Reykjavík verður í Borgarleikhúsinu annað kvöld, 24. maí 2006 kl. 20:30. Þar munu stuðningsmenn og frambjóðendur V-listans hittast til að efla andann og stilla saman strengi á lokaspretti kosningabarátunnar. Í boði verður blönduð dagskrá, sem samanstendur af innblásnum ávörpum þeirra sem standa í stafni baráttunnar í bland við hljómfagra tóna úr ýmsum áttum.

Allir að mæta :)

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 23rd, 2006| icon3No Comments »
May 22

Það eru fimm dagar í kosningar. Ég svaf yfir mig í morgunn og mætti ekki á kosningaskrifstofuna fyrr en um hádegi. Mikið var það gott, en ég er samt svo þreytt. Barnið mitt sem kíkir alltaf við á leiðinni frá dagmömmunni með pabba sínum verður voða glöð þegar hún sér kosningamiðstöðina, bendir í áttina að henni og segir hátt og snjallt “mamma”. Ég á svo gáfað barn. Hún veit sko alveg að mamma sín er að vinna í þágu góðs málefnis og tekur því ekkert illa að ég hangi hér dægrin löng. Í staðinn býst hún við að flokkurinn sem ég er í framboði fyrir komist í meirihluta og útvegi henni leikskólapláss fyrir tveggja ára aldur og það helst frítt. Eins og ég segi gáfuð og með fallegar hugsjónir hún Freyja mín.

Annars óska ég hér með eftir einhverjum sem vill ættleiða barnið mitt í sólarhring eða svo í kringum kosningarnar.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 22nd, 2006| icon3No Comments »
May 20

Ég var svo óendanlega glöð þegar ég kom heim í nótt. Tónleikarnir tókust frábærlega. Hljómsveitirnar voru æði og kjallarinn var troðfullur af fólki. Þarna voru a.m.k. nokkur bönd sem mig langar endilega að heyra oftar í. Bubba og Marta voru óendanlega töff, ef til vill spilar það inn í að ég hef alltaf verið “svag” fyrir sænsku. Það var eitthvað við sænsku lögin þeirra sem minnti mig á Lísu Ekdahl en þær voru samt mun kraftmeiri. Hljómsveit Þóru Bjarkar var líka frábær. Ótrúlegt að eiga stelpu sem semur svona flotta tónlist hérna á klakanum án þess að meira heyrist af og frá henni. Í fyrsta laginu hennar fór hún upp í tónhæðir sem ég vissi ekki að mætti fara í og ég fékk gæsahúð í tólfta veldi. Rósa er rebell og töffari. Eiginlega ómissandi atriði á tónleikum UVG frá og með nú. Byssupiss var töff töff töff eins og venjulega nema að það hefði mátt laga hljóðið því það heyrðist ekki nægilega í söngnum. Ég var orðin svolítið stressuð um að síðasta atriðið næði ekki inn í hús tímanlega en Jara mætti á staðinn og söng eins og gyðja. Sorglegt að svona frábært atriði færi fram fyrir hálftómum sal því flestir voru farnir þegar svo langt var liðið á kvöldið.

Ég fór sem sagt að sofa hamingjusöm og ánægð með kvöldið. Fyrir þá sem vilja komast í samband við fleiri stelpu/konu-bönd bendi ég á þessa síðu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 20th, 2006| icon32 Comments »
May 18

Hvernig haldið þið að þetta fari?

Hvernig sem þetta fer hvet ég alla til að mæta á Ölver kl. 19:00 en þá verður gríðarlega skemmtilegt VG eurovision-partý. Heyrst hefur að söngkona sem er betri en sjálf Janis Joplin muni skemmta með einu lagi í hléi…….

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 18th, 2006| icon32 Comments »

« Previous Entries