Orðið á götunni er mjög skemmtilegt. Ég var bara að sjá þessa síðu í fyrradag þegar að Freyr, minn mjög svo tryggi eiginmaður, var hreint út sagt rasandi yfir að forsvarsmenn síðunnar linkuðu ekki á mína síðu. Ég kom frekar af fjöllum í þessari umræðu hans, þar sem ég hafði aldrei séð síðuna hvað þá fannst óréttlætanlegt að þeir væru ekki með tengingu yfir á mig. Hef aldrei verið að velta mér mikið upp úr því hverjir linka á hvern. En síðan er engu að síður frábær lesning.
Boðskapur sögunnar - Mikið er gott að eiga svona góðan eiginmann sem hefur óbilandi trú á manni (þó öllu megi ofgera).
June 23rd, 2006 at 11:07
…ég er nú bara algjörlega sammála honum Freyza hérna Auður mín..
kaffihús bráðum?
June 24th, 2006 at 00:29
eftir að hafa rennt yfir bloggliðið á síðunni orðið á götunni þá verð ég að vera sammála manninum þínum, þetta er hin mesta hneisa
June 24th, 2006 at 21:51
Rosalega er ég stoltur yfir að vera ekki þarna, við erum greinilega bara hafin yfir það að vera pólitísk …
June 26th, 2006 at 17:28
Síðan hvenær kallast síða Ágústs Borgþórs pólitískt blogg?? Síðast þegar ég vissi voru þetta bara sögur af honum að fara á kaffihús.