Mikið var ég ósátt við guðsþjónustuna sem var þröngvað var upp á mig í gærkvöldi. Gjörningurinn náði nánast að skemma fyrir mér annars mjög vel lukkað kvöld. Predikunin var reyndar mjög góð og innihaldið fallegt og þarft. Þar sem ég trúi ekki á guð, hef skráð mig úr þjóðkirkjunni og kýs að mæta ekki í kirkju finnst mér ég þó hafa rétt á að sleppa við predikanir sem þessa.
Ég kom í gönguna til að sýna andstöðu mína við Kárahnjúkavirkjun. Ef þjóðkirkjan, eða einstaklingar innan hennar, eru einnig andvígir virkjuninni finnst mér það hið besta mál. Mér finnst það þó á engan hátt réttlæta að fulltrúar hennar séu fengnir til að troða upp á mig, eða öðrum, guðs orði á stundu sem þessari. Ég fékk t.a.m. ekkert tækifæri til að fara upp á svið og predika yfir hópnum um stefnu Vinstri Grænna né komu fulltrúar annarra trúarbragða fram.
