Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, sagði við Ríkisútvarpið að betra hefði verið ef formenn ríkisstjórnarflokkanna hefðu haft samráð við utanríkismálanefnd Alþingis þegar þeir ákváðu að styðja hernað Bandaríkjamanna í Írak.
Já, er það ekki!
Þetta er nákvæmlega það sem við sögðum. En einhverra hluta vegna virðist forystufólk Framsóknarflokksins ekki hlusta á almenna skynsemi, vilja þjóðarinnar eða annað nema þegar styttist í kosningar.