Í dag kjósum við, Vinstri-græn, þingmannsefni okkar á suðvesturhorninu fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Undirrituð gefur þar kost á sér í 2. sæti. Um margt er þetta forval okkar Vinstri-grænna einstakt, ný tíðindi í íslenskum stjórnmálum. Í fyrsta skipti eru þrjú kjördæmi undir og með því er slegin nýr tónn. Fjöldinn allur af afar hæfu fólki hefur gefið kost á sér og ljóst að hvernig sem fer munum við, Vinstri-græn, bjóða fram öfluga og flotta lista í vor.
Vinstri-græn hafa allt frá stofnun verið leiðandi afl í íslenskum stjórnmálum. Við höfum talað röddu skynseminnar meðal annars í umhverfismálum, utanríkismálum og hagstjórn. Stjórnarherrarnir hafa hins vegar sjaldnast borið gæfu til þess að hlusta og nú er svo komið að flestar þær spár sem að við settum fram hafa því miður gengið eftir.
Vinstri-græn tala röddu skynseminnar
Við vöruðum við stríðsbrölti Bandaríkjamanna, bæði í Afganistan og í Írak. Nú er svo komið að borgarastríð ríkir í báðum löndum, tortryggni og bil milli menningarheima eykst dag frá degi og engin lausn virðist í sjónmáli. Þessu vöruðum við Vinstri-græn við en stjórnarherrarnir skelltu skolla eyrum við og settu Ísland á lista hinna viljugu þjóð í trássi við lög og vilja almennings.
Við vöruðum við ofhitnun efnahagskerfisins sem að stóriðjubrjálæðið myndi hafa í för með sér og nú er svo komið að Seðlabankinn sér sig knúinn til að hækka stýrivexti á hverjum vaxtaákvörðunardegi til að koma í veg fyrir óðaverðbólgu.
Við vöruðum við því að um óafturkræf náttúrspjöll væri að ræða við byggingu Kárahnjúkavirkjunar og þrátt fyrir að þau spjöll verði ekki aftur tekin er gleðilegt að sjá að meirihluti þjóðarinnar virðist kominn á okkar skoðun.
Vinstri-græn hafa mótað stjórnmálaumræðu í þjóðfélaginu. Við höfum komið málum á dagskrá sem að nú þykja sjálfsögð og eðlileg en hefði verið óhugsandi að fengju hljómgrunn fyrir átta árum eða svo. Umræða um kvenfrelsi, kynbundið ofbeldi og kynbundinn launamun hafa ratað inn í sali Alþingis fyrir tilstilli þingmanna okkar. Málefni náttúru og umhverfis eru nú í einhverri mynd hluti af stefnu allra flokka á landinu, þrátt fyrir að í skötulíki sé hjá ýmsum.
Vinstri-græn standa við orð sín
Ég vil leggja mitt af mörkum til að rödd okkar Vinstri-grænna hljómi áfram háum rómi út í samfélaginu. Ég vil leggja mitt af mörkum til að Vinstri-græn ná þeim styrk sem þarf til að koma á róttækum breytingum, íslensku þjóðfélagi til framdráttar.
Við munum standa vörð um velferðarkerfið og rétta hlut þeirra sem hafa orðið undir í samfélagi sem að einkennist af einstaklingshyggju og ofurtrú á vald peninganna. Við ætlum að byggja upp öflugt atvinnulíf sem að hvílir á fjölbreyttum stoðum og höfnum einhæfum skyndilausnum sem að komandi kynslóðir munu líða fyrir. Við látum náttúruna njóta vafans í öllum okkar aðgerðum og umgöngumst landið okkar af virðingu en gleymum því ekki að við erum hluti af stærra samhengi, heiminum öllum. Vinstri-græn munu aldrei leiða þjóðina út í stríðsrekstur á erlendri grund heldur munum við gera okkar besta til að gera Ísland að leiðandi afli í friðvænlegri heimi.
Ég stend fyrir öll þessi mál og meira til. Mestu skiptir þó að við Vinstri-græn munum ekki bregðast kjósendum okkar. Við stöndum keik og erum stolt af okkar málflutningi. Við munum halda áfram að berjast fyrir því að færa íslenskt þjóðfélag fram á veginn. Ég er Vinstri-græn.
Greinin birtist í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 2. desember.
… og þau í Fréttablaðinu sáu ástæðu til að breyta heiti hennar í Vinstri-GrænIR kjósum í dag.