Jan 30

Ég gjörsamlega missti andlitið þegar Ómar Ragnarsson, sjálfsskipaður talsmaður umhverfisverndar á Íslandi, birtist mér á sjónvarpsskjánum í gærkvöldi að tala fyrir því að endurvekja rúntinn í Reykjavík.

Hvernig dettur manninum þetta í hug?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 30th, 2007| icon3No Comments »
Jan 25

Freyjan er búin að vera veik í heila viku og við Freyr erum búin að skiptast á að vera heima og hafa ofan fyrir henni ásamt Stubbunum. Vonandi er heilsan þó að komast í lag. Hún fór a.m.k á Barnaspítalann í dag þar sem tekin var röntgenmynd og blóðprufa sem sýndi ekki fram á neitt alvarlegt. Líklegast er þetta bara RS vírusinn enn og aftur.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 25th, 2007| icon3No Comments »
Jan 22

Um helgina sat ég að hluta til flokksráðsfund Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Að hluta til vegna þess að litla Freyjan mín er búin að vera svo lasin svo við Freyr skiptum með okkur að sinna henni á laugardeginum.

Ég missti þó ekki af skemmtilegasta hlutanum, þ.e. almennum stjórnmálaumræðum. Umræðurnar stóðu frá átta til ellefu og ég veit þið komið ekki til með að trúa mér en tíminn flaug áfram. Hver flytjandi fékk um fjórar mínútur til að flytja mál sitt og hver einn og einasti hafði eitthvað merkilegt, skemmtilegt eða fróðlegt fram að færa. Mikið var rætt um málefni landbúnaðarins og byggðamál en jafnframt var rætt um kvenfrelsi, kynfrelsi, misskiptingu, umhverfismál, Evrópusambandið, evruna, málefni aldraðra, öryrkja, tónlistarnám og ég gæti endalaust haldið áfram að telja upp. Þvílík snilld! Ég talaði sjálf um tvö hugarefni mín, þ.e. aðskilnað ríkis og kirkju og svo Evrópusambandið.

Út úr þessu frjóa jarðvegi VG komu fjórar stórglæsilegar ályktanir sem má sjá hér.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 22nd, 2007| icon31 Comment »
Jan 19

Það er sérstök tilfinning sem fylgir því að fara í sturtu í öllum fötunum. Það er einfaldlega eitthvað svo rangt!

Já! dóttirin er sem sagt með æluna og tókst að fresta fundarhaldi hjá mér í gærkvöldi með því að æla yfir hverja einustu flík sem ég var í. Við mæðgurnar skelltum okkur því í sturtu í öllum fötunum til að skola mesta ógeðið af okkur áður en þvottavélin var sett af stað.

Hamingjuóskir dagsins eru til Erlu Guðrúnar, hetjunnar miklu, sem var að prenta BA ritgerðina sína út hjá mér en er nú haldin á leið upp í skóla til að skila henni. Ritgerðin sem fjallar um orðræðuna um einkaskóla er mjög töff!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 19th, 2007| icon3No Comments »
Jan 18

Þrátt fyrir að fáir reyni að herma það upp á mig að ég sé mikil áhugamanneskja um knattspyrnu er ég ekki frá því að áhuginn hafi stóraukist við þessar fréttir:

Halla Gunnarsdóttir blaðamaður hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns Knattspyrnusambands Íslands.

Þessar nýju fregnir eru sérstaklega áhugaverðar í ljósi þessarar samantektar sem Sóley birti á dögunum.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 18th, 2007| icon33 Comments »
Jan 16

Ég sver það að ég snappa ef ég fæ enn einu sinni komment um það að ég verði að “hleypa manninum mínum út”. Mikið efast ég um að Frey sé drekkt í slíkum athugasemdum þegar hann fer út á meðal fólks.

Hvernig væri að það fólk sem hefur áhyggjur af því að maðurinn minn sé of heimakær hafi bara samband beint við hann?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 16th, 2007| icon31 Comment »
Jan 15

Ég fékk símtal um daginn frá dreng sem vildi fá barnið mitt lánað í auglýsingamyndatökur. Hugmyndin var það skondin að ég gat ekki annað en játað.

Þó að ég hafi samþykkt að lána myndarlega barnið mitt í kosningabaráttu Háskólalistans get ég ekki annað en verið fegin að vera útskrifuð úr Háskólanum. Ég stend að sjálfsögðu með mínum lista, eða öllu heldur því fólki sem heldur minni hugsjón á lofti, en ég held að ég hefði orðið geðveik af einu ári í viðbót á fullu í sandkassanum.

Á sama tíma sakna ég þó alls þess skemmtilega fólks sem ég hef unnið með í gegnum tíðina á vettvangi stúdentastjórnmálanna og óska þeim velfarnaðar í baráttunni.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 15th, 2007| icon3No Comments »
Jan 12

Þetta eru nokkurn vegin skilaboð Vilhjálms Þ. Vilhjálmsson í hinu “stóra spilakassamáli”. Það fer að sjálfsögðu ekki saman við stefnu Sjálfstæðisflokksins að vilja banna spilakassa eða fjárhættuspil en í guðana bænum ekki blanda þessum örmu spilafíklum saman við fjölskyldufólk í Mjóddinni.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 12th, 2007| icon3No Comments »
Jan 12

Mikið er ég hjartanlega sammála Árna Þór hvað þetta varðar.

Þjónusta við heimilislausa á að vera í höndum hins opinbera og á ábyrgð þess opinbera, ekki trúfélaga eða lífskoðunarfélaga.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 12th, 2007| icon3No Comments »
Jan 10

…því að taka að sér að hjálpa Erlu með lokaritgerðina sína. Því fylgir ómæld skemmtun, fríar máltíðir, frír bjór og óteljandi tækifæri til að gera grín að furðulegum málsháttum sem hún býr til. Hver hefur t.d. ekki heyrt um að einhverjum vaxi fylgi um hrygg? (ég ætti ef til vill ekkert að segja mikið enda nota ég orðið hræsi mikið sem er víst samsuða af hreysi og ræsi).

…því að hitta skemmtilegt fólk á kaffihúsum

…því að fara í ræktina fyrir allar aldir og mæta ferskur í vinnuna

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 01 10th, 2007| icon31 Comment »

« Previous Entries