Það er frekar spaugilegt, já eða sorglegt, að fylgjast með tilburðum ríkisstjórnarflokkanna hvað varðar varnarmál.
Þegar Bandaríkjaher tóku einhliða ákvörðun um að fara með herinn á brott fengu Sjálfstæðismenn hjartaáfall og endurtóku frasann um að Ísland yrði að hafa sýnilegar varnir - annað væri fáranlegt!
Þegar að ljóst varð að Bandaríkjaher ætlaði ekki að halda áfram veru sinni hér sama hvað stjórnvöld segðu tók við ný klisja, þ.e. auðvitað verðum við að hafa leynilegar varnir. Menn eru auðvitað ekki að auglýsa hvernig varnarmálin eru - annað væri fáranlegt!
Nú er allt í einu orðin ljóst að það er brýn þörf á því að hafa sýnilegar varnir á friðartímum en leynilegar varnir á ófriðartímum.
Mín skoðun sést kemst vel á framfæri í þessu merki!
