Í síðustu viku fór ég á smiðju UVG um Vistvernd í verki. Þar fræddi Bryndís Þórisdóttir, verkefnastýra verkefnisins um vistvernd í verki, okkur um ýmislegt sem við getum gert í okkar daglega lífi til að draga úr mengun, sorpi en jafnframt spara aura! Smiðjan var ótrúlega fróðleg og í kjölfarið ætlar stjórn UVG að skrá sig í visthóp sem byrjar þó sennileg ekki fyrr en næsta haust, a.m.k ekki fyrr en eftir kosningar.
Í gær fór ég á söngsmiðju hjá VG þar sem ég söng gömul og ný róttæklingalög í góðum hópi. Það hefur sennilega ekki farið fram hjá vinum mínum og kunningjum að ég elska að syngja. Ég hef þó enn meira gaman af því að syngja róttæklingalög eins og Vögguvísu róttækrar móður, Sóleyjarkvæði, Maistjörnuna o.s.frv.