May 29

Ég hreinlega skil ekki hví Steingrímur er ekki forsætisráðherra í þessari nýju ríkisstjórn. Að minsta kosti virðast Kratarnir hafa mikið álit á honum og hæfileikum hans til stjórnarmyndunar. Mikið er gott að geta bæði haldið og sleppt.

Jú jú, að vísu er Samfylkingin í stjórn með íhaldinu.
*Það er samt ekki okkur að kenna heldur Steingrími J
*Og við hötum íhaldið samt eins og pestina

Það má því með sanni segja að segja að Steingrímur J. Sigfússon, með söng sírenunnar í gervi félaga Styrmis í eyrum sér, sé hinn raunverulegi arkitekt að nýrri samstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.

ostrich.jpg

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 29th, 2007| icon32 Comments »
May 26

Útgáfutónleikar HRAUN sem voru haldnir í Þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi voru meiriháttar. Ég trúi ekki öðru en að þetta verði söluhæsta plata á Íslandi þetta árið, a.m.k. eiga þeir drengirnir það skilið að allir kaupi geisladiskinn I can’t believe it’s not happiness.

happinesscoverweb.jpg

Svavar Knútur hefur verið í sérlegu uppáhaldi hjá mér eftir að hann náði að skapa ógleymanlega stemingingu á kosninga-andvöku Háskólalistans fyrsta árið sem listinn bauð fram. Þar var Svavar bara einn til að byrja með en fékk fljótlega aðstoðarmann sem spilaði á bongó-trommur. Stemningin var samt ótrúleg, eins og um væri að ræða 10 manna hljómsveit að spila fyrir fullum sal í Laugardalshöll. Eftir það kvöld var Rebellinn gerður að baráttusöng Háskólalistamanna og margra annarra. Síðan þá hef ég kynnst Svavari Knúti meira og er ekki einungis aðdáandi tónlistar frá honum heldur sömuleiðis persónulegur aðdáandi - því drengurinn er einlægur, góðhjartaður hugsjónamaður.

Ég mæli hiklaust með að þið fjárfestið í einu eintaki af þessum nýja disk!

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 26th, 2007| icon31 Comment »
May 25

Ég hef gríðarlegan húmor fyrir framsetningu Samfylkingarsinna á tilkomnu samstarfi flokks þeirra við Sjálfstæðisflokkin og er ekki frá því að þetta fólk sé veruleikafirrt upp til hópa.

Jú jú, að vísu er Samfylkingin í stjórn með íhaldinu.
*Það er samt ekki okkur að kenna heldur Steingrími J
*Og við hötum íhaldið samt eins og pestina

Já… Við gerðum þennan stjórnarsáttmála
*hann er samt á engan hátt lýsandi fyrir stefnu okkar
*né það sem við ætlum að gera á komandi kjörtímabili
*því við erum í raun miklu vinstrisinnaðri og eigum ekkert eftir að láta íhaldið temja okkur
*þessi stjórnarsáttmáli er því á engan hátt svik við kjósendur okkar
*né afbökun á því sem við héldum fram í kosningabaráttunni

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 25th, 2007| icon35 Comments »
May 23

Þegar ég var lítil fannst mér lestarferðir og flugferðir gífurlega spennandi. Mesti glansinn af þessum æsispennandi fararkostum er löngu farinn en það var engu að síður ótrúlega gaman að fá tækifæri til að ferðast með flugvél, lest, rútu, strætó, ferju og fótgangandi með uppáhalds róttæklingunum mínum, Sverri og Þórhildi í útlandinu. Ég er ekki frá því að ég sakni þeirra nú þegar svo mikið að ég væri til í að taka eitt rölt með þeim um Klambratúnið með fáranlega þunga bakpokann minn svona bara til að rifja upp fílinginn í ferðinni. Ég er skotin í þeim báðum.

Fyrst var förinni heitið til Svíþjóðar þar sem við Þórhildur dvöldum í boði Ung Vänster en þau voru að halda ársþing sitt. Það var svoldið spes tilfining að vera þar. Við vorum náttúrulega nýkomnar til útlanda og í mínum huga táknar það venjulega bjórdrykkju og stuð. Svíarnir eru hins vegar tengdir nánum sögulegum böndum við edrúhreyfinguna í Svíþjóð, drykkja er bönnuð á samkomum þeirra og stemningin þar af leiðandi frekar róleg, a.m.k. þetta kvöld. Við vorum því komnar í rúmið klukkan tíu. Daginn eftir fórum við einnig á SUN fund - Socialistisk Ungdom i Norden. Sá fundur var ótrúlega góður og ég hlakka mjög til komandi tíma enda er margt mjög spennandi í bígerð.

Eftir SUN fundinn var haldið til Finnlands í partýbátnum og Sverrir slóst í för með okkur. Það er víst ekki kallaður partýbátur að ástæðulausu. Ferjan lagði af stað átta um kvöldið og lagði að bryggju í Finnlandi átta um morgunin. Ég var reyndar óvenjulega þæg og góð og fór að sofa snemma en systkinin héldu uppi heiðri Íslendinga um borð í bátnum.

Í Finnlandi eyddum við hálfum degi í Helsinki en héldum svo til Turku þar sem aðalfundur Vasemmistonuoret var haldinn. Samtökin í Finnlandi eru ótrúlega lík okkur í UVG hér heima - reið, róttæk, vinstrisinnuð, friðarsinnar, femínísk og með umhverfismálin á hreinu.

Veðrið í Finnlandi var ótrúlega gott, sól og hiti en það var líka ótrúlega spennandi, fræðandi og gefandi að fá að fylgjast með aðalfundi þessara stóru samtaka og sjá hvernig fundurinn fór fram.
Umhverfið blés miklum baráttuanda í brjóst okkur ferðalanganna. Og jafnvel Sverrir var farinn að raula með í Veislusöngnum og Vögguvísu róttækrar móður.

Þetta alþjóðlega samstarf er nefnilega meira gefandi en mér hefði getað dottið í hug áður. Það er ekki bara það að maður fær tækifæri til að sjá hvernig hinar hreyfingarnar gera hlutina og hitta skemmtilegt fólk með háleitar hugsjónir heldur líka það að þetta gefur manni svo margar hugmyndir. Ég kem alltaf til baka full af eldmóði og áhuga og það eitt hefur gífurlega jákvæð áhrif á starfið.

Líkt og Þórhildur langar mig að skemmta þeim systkinunum með nokkrum einkabröndurum (sem ég ætla auðvitað ekki að útskýra fyrir hinum).

* en EF Thuomas væri helmingi stærri, rauðhærður og í leðurbuxum…..
* but what about eurovision
* Ha? Fékk ég mér pylsu í gær?
* Hittum við Jussí?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 23rd, 2007| icon32 Comments »
May 15

Þessar kosningar fóru ekki á þann veg sem ég óskaði. Því er ég bara farin af landi brott. Reyndar eru ekkert betri stjórnir í Svíþjóð og Finnlandi en það má alltaf vona að koma mín hafi afdrifaríkar breytingar í för með sér.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 15th, 2007| icon32 Comments »
May 9

Samkvæmt nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Stöð tvö er ríkisstjórnin fallin.

Sjálfstæðiflokkurinn og Framsóknarflokkur eru samanlagt með 30 þingmenn.
Vinstri-græn og Samfylking með 30 þingmenn en Frjálslyndi flokkurinn með 3 þingmenn.

Koma svo!!!
örfá atkvæði í viðbót og við erum að tala um tveggja flokka vinstri ríkisstjórn.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 9th, 2007| icon3No Comments »
May 8

Ef þú ert femínisti og veltir fyrir þér hvað skuli kjósa á laugardaginn, lestu þá þetta um Vinstrihreyfinguna grænt framboð:

VG er eini flokkurinn sem hefur gripið til sértækra aðgerða til að jafna kynjahlutföll á framboðslistum, enda teljum við mikilvægt að auka hlut kvenna á Alþingi og í sveitarstjórnum. Niðurstöður kannana undanfarinna vikna benda til þess að VG verði eini flokkurinn með tiltölulega jafnt kynjahlutfall í þingflokkum. Hinir flokkarnir nálgast það ekki.

VG hefur barist ötullega fyrir málfrelsi fólks um kaup og kjör og mun halda því áfram. Með afnámi launaleyndar mun samningsstaða kvenna varðandi laun batna til muna.

VG hefur lagt fram frumvarp um að Jafnréttisstofa fái aukið vægi, svipað Samkeppnisstofnun, að hún hafi möguleika á að afla upplýsinga og grípa til aðgerða þegar nauðsyn krefur, sem og að álit hennar verði bindandi.

VG kynnti sænsku leiðina fyrst til sögunnar árið 1999 og hefur aflað henni fylgis fram til dagsins í dag. Nú er svo komið að allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur telja ráðlegt að gera kaup á vændi refsiverð.

VG hefur barist ötullega gegn klámvæðingunni - bannaði einkadans og útgáfu leyfa fyrir nýjum nektardansstöðum í borginni í tíð R-listans og vakti máls á klámráðstefnunni sem flæmd var úr landi í mars á þessu ári.

VG hefur lagt fram frumvarp um að konur af erlendum uppruna sem búa við heimilisofbeldi verði ekki háðar maka um dvalarleyfi hérlendis.

VG hefur lagt fram frumvarp um fórnarlamba- og vitnavernd til hagsbóta fyrir konur sem hingað eru seldar mansali.

VG hefur lagt fram frumvarp um austurrísku leiðina - að ofbeldismenn verði fjarlægðir af heimilum í stað þolendanna.

VG mun vinna að auknu kynfrelsi kvenna - m.a. með því að fjarlægja ofbeldistenginguna í nauðgunarákvæði hegningarlaga. Að nauðgun verði refsiverð, hvort sem hótun um annars konar ofbeldi fylgir glæpnum eða ekki.

VG vill auka jöfnuð í samfélaginu - öllum til góða.
Fyrir athugasemdaglaða lesendur, þá er þessi færsla ekki hugsuð til skoðanaskipta um réttmæti þessara aðgerða, heldur fyrst og fremst til upplýsingar fyrir þá femínista sem telja mikilvægt að gripið verði til jafnréttisaðgerða í samfélaginu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 8th, 2007| icon3No Comments »
May 5

Á Suðurgötu 3 eru til sölu bolir í rauðu og svörtu og kosta einungis 1000 kr. Þessi mynd prýðir bolina:

hermadur.jpg

Þar eru jafnframt til sölu happdrættismiðar með ógeðslega töff vinningum.

Ég mæli eindregið með heimsókn þangað í dag.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 05 5th, 2007| icon3No Comments »