Jul 26

Öðru hvoru spretta upp hinir “einu sönnu megrunarkúrar” sem allir fara á og allir dásama sem hinn eina sanna.

Nú er ég hins vegar búin að finna upp eiginn kúr sem þrælvirkar, þ.e. framkvæmdakúrinn. Til að gefa ykkur innsýn í þessa snillldarlausn koma nokkur þrep kúrsins hér að neðan.

1. Færðu öll húsgögnin á heimilinu inn í eldhúsið og staflaðu þeim upp svo að ekki sé hægt að komast í ískápinn, ekki hægt að elda og ekki hægt að vaska upp. Síðast en ekki síst er mjög mikilvægt að stilla ofnana í botn og hafa troðfullan ruslapoka lokaðan af inn í elhússkáp.

2. Einbeittu þér að því að þrífa, mála og smíða. Þú átt eftir að finna fyrir vöðvum sem þú vissir ekki að hægt væri að þjálfa í slíkum framkvæmdum og þeir sem ekki viðurkenna framkvæmdir sem íþrótt eru uppfullir af sjálfsblekkingu.

3. Eftir tvo til þrjá daga fer ruslið að lykta all svakalega og engum myndi detta í hug að láta ofan í sig matarbita við slíkar aðstæður.

4. Drekktu bara bjór í staðinn og haltu áfram við framkvæmdir.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 07 26th, 2007| icon3No Comments »
Jul 19

Fór á snilldar tónleika með Svavari Knúti á Næsta bar í gær. Að sjálfsögðu bað ég um óskalagið Mengum Ísland. Snilld!

Svavar Knútur er einhver besti skemmtikraftur sem ég veit um þegar sá gállinn er á honum - a.m.k. var borðið mitt í hláturskrampa þegar lagið var tekið.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 07 19th, 2007| icon3No Comments »
Jul 12

Mamma mín lenti í honum kröppum á Hornströndum. Hún var þar í mesta sakleysi og hetjuskap í gönguferð þegar að hún fór að líða kvalir í maganum og það ekkert smávægilegar kvalir. Sem betur fer spiluðu aðstæður með í för var læknir og þau voru nákvæmlega staðsett þar sem var símasamband. Læknirinn sá strax að þetta var alvarlegt og náði að hringja og heimta þyrlu á staðinn. Ég náði að kíkja á hana þegar hún var komin suður og stóð satt að segja ekki á sama. Þá var hún náttúrulega búin að kveljast tímunum saman, nýbúin að fá morfín til að lina kvalirnar og útlitið eftir því. Eftir rannsóknir á spítalanum kom í ljós að hún var með fjögur göt á skeifugörninni sem magasýrur seitluðu í gegnum og þurfti þá þegar að fara í uppskurð. Allt tókst eins og best var á kosið. Hetjan er á batavegi og mun að öllum líkindum fara í aðra gönguferð á strandirnar næsta sumar.

Ég gat að sjálfsögðu ekki verið minni manneskja en mamma og nældi mér því í fyrirtaks kvefpest í sól og blíðu um mitt sumar. Ég er búin að liggja í rúminu í dag en verð sennilega að reyna að harka af mér og fara í vinnuna á morgun því það er síðasti dagurinn minn fyrir stutt sumarfrí.

Allt er þetta búið að tefja framkvæmdirnar hér á Guðrúnargötunni en þær munu halda áfram í sumarfríinu.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 07 12th, 2007| icon33 Comments »
Jul 6

Þessa dagana erum við hjónin að mála íbúðina okkar. Við byrjuðum á svefnherberginu í fyrradag og lukum því að mestu í gær. Þvílíkur munur!!! Hræðilegi ferskjuliturinn er ekki lengur til staðar og ljóti brúni skápurinn er orðinn hvítur. Um helgina verður svo haldið áfram og allir áhugasamir velkomnir að reka inn nefið og aðstoða.

Vegna framkvæmdanna höfum við sofið tvær nætur í stofunni við mikinn fögnuð Freyjunnar. Að vísu var dóttirin ekkert svo glöð í fyrstu og ég er ekki frá því að það blundi eilítil íhaldssemi í henni. Þegar rúmið okkar var borið inn í stofu og hennar rúm fylgdi í kjölfarið mótmælti hún hástöfum. Allt ætlaði svo um koll að keyra þegar að tjaldið hennar (herbergið hennar) var borið inn í eldhús og voru gerðar þó nokkrar tilraunir af hennar hálfu að draga það til baka. Hún hefur þó mikla aðlögunarhæfileika og unir sér sátt við ástandið í dag að því undanteknu að hún bendir foreldrum sínum reglulega á óheyrilegan sóðaskap inn í svefnherbergi. Sú ábending er réttmæt enda nutum við Freyr þess mjög að sulla eins og okkur lysti þar sem við erum að fara að parketleggja síðar í mánuðinum.

Freyr er búinn að uppgötva eitt leyndarmálið mitt sem ég hef hingað til ekkert verið að básúna, þ.e. að mér finnst ógeðslega gaman að mála! Meðan hann bölvar og ragnar yfir vinnunni og leiðindunum brosi ég út að eyrum, drekk bjór og dáist að dagsverkinu. Ég hins vegar hef uppgötvað leyndarmál líka - það er ekki hægt að mála heila íbúð nema eiga helling af bjór í kælinum.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 07 6th, 2007| icon34 Comments »
Jul 6

Ég verð að viðurkenna að sumt er einfaldlega ofar mínum skilningi. Á MBL.IS var í gær fjallað um sýknun manns sem var ákærður fyrir nauðgun.

Í umfjölluninni kemur fram að samkvæmt stúlkunni hafi allt sem fór fram inn í klefanum verið gegn vilja hennar og að dómurinn hafi talið hana trúverðuga. Stúlkan var víst með áverka og einkenni áfallastreituröskunar svo að eitthvað mikið hefur gengið á. Síðar kemur þó fram að það sem fór fram innan klefans nægi hins vegar ekki til að dæma ákærða fyrir nauðgun.

Það er eitthvað við þetta sem einfaldlega gengur ekki upp.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 07 6th, 2007| icon3No Comments »
Jul 3

“gjörsuvel” sagði dóttirin og rétti fram hendina

“Takk” sagði mamman og opnaði lófann til að veita þykjustu gjöfinni móttöku

“Hvað er þetta?” spurði hún svo fyrir forvitnis sakir

“fimmtudagur” “borða!” sagði dóttirin svo í skipandi tón

Og móðirin át fimmtudag með gleði vitandi það að nú væri vinnuvikan deginum styttri

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 07 3rd, 2007| icon31 Comment »