Mamma mín lenti í honum kröppum á Hornströndum. Hún var þar í mesta sakleysi og hetjuskap í gönguferð þegar að hún fór að líða kvalir í maganum og það ekkert smávægilegar kvalir. Sem betur fer spiluðu aðstæður með í för var læknir og þau voru nákvæmlega staðsett þar sem var símasamband. Læknirinn sá strax að þetta var alvarlegt og náði að hringja og heimta þyrlu á staðinn. Ég náði að kíkja á hana þegar hún var komin suður og stóð satt að segja ekki á sama. Þá var hún náttúrulega búin að kveljast tímunum saman, nýbúin að fá morfín til að lina kvalirnar og útlitið eftir því. Eftir rannsóknir á spítalanum kom í ljós að hún var með fjögur göt á skeifugörninni sem magasýrur seitluðu í gegnum og þurfti þá þegar að fara í uppskurð. Allt tókst eins og best var á kosið. Hetjan er á batavegi og mun að öllum líkindum fara í aðra gönguferð á strandirnar næsta sumar.
Ég gat að sjálfsögðu ekki verið minni manneskja en mamma og nældi mér því í fyrirtaks kvefpest í sól og blíðu um mitt sumar. Ég er búin að liggja í rúminu í dag en verð sennilega að reyna að harka af mér og fara í vinnuna á morgun því það er síðasti dagurinn minn fyrir stutt sumarfrí.
Allt er þetta búið að tefja framkvæmdirnar hér á Guðrúnargötunni en þær munu halda áfram í sumarfríinu.
July 12th, 2007 at 23:45
ég sendi móður þinni batakveðjur og þér líka
ég er líka búin að kommenta aftur við gömlu færsluna þína því ég sá ekki að það var komin ný færsla
já mér leiðist eilítið hér á dósinni:)
July 13th, 2007 at 21:27
Vona að batinn gangi vel hjá ykkur mæðgum. Ætli við komum ekki við eftir sumarfrí hjá okkur og tökum herlegheitin út.
July 17th, 2007 at 14:16
Kveðja frá Texas
Fékk vægt sjokk að sjá veikindi móður þinnar á síðu þinni er ég fylgist alltaf með - hér í Houston og hef gaman að -en bið innilega að heilsa henni og með von um góðan og skjótan bata …hann faðir þinn var ekki að tilkynna mér þetta og fær skammir fyrir — hafið það gott í fríi
Frænka í Tx