Aug 24

Stundum er sagt að fólk í stjórnmálum sé athyglissjúkt og nýti hvert tækifæri sem gefst til að komast að í fjölmiðlum. Ég leyfi mér þó að efast um að það geri mér mikið gagn að fá innskotmynd af mér skælbrosandi við tölvu undir fréttainnslagi þar sem fjallað er um gríðarlega skuldastöðu heimilanna og yfirdráttarlán.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 08 24th, 2007| icon3No Comments »
Aug 23

Ég á afmæli.

Í tilefni dagsins söng dóttir mín fyrir mig “hann á afmæli í dag” hrópaði húrra og klappaði. Maðurinn minn er hins vegar lasinn, mundi ekkert eftir þessum merkilega degi í morgun heldur urraði reglulega yfir látunum í okkur Freyju. Hann fær hins vegar prik í kladdann fyrir að hringja í mig í vinnuna fyrir hádegi fullur iðrunar og óska mér til hamingju.

Ég ætla að halda upp á daginn með stjórn UVG sem ætlar að funda heima hjá mér. Ég reikna fastlega með að allir fundargestir muni eftir afmælisbarninu og taki með kökur eða annað góðgæti. Ég reikna sérstaklega með að duglegir kommúnuistar sem kunna að baka færi mér köku(r). Þeir sem ekki kunna baka geta fært mér öl.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 08 23rd, 2007| icon38 Comments »
Aug 12

Íslendingar eru að taka við rekstri á Ratsjárstofnun. Þessari yfirtöku fylgja gríðarlegar fjárskuldbindingar fyrir íslensku þjóðina, a.m.k. um miljarður króna á ári. Þessi yfirtaka mun eiga sér stað eftir tvo daga þrátt fyrir að málið sé að miklu leyti ófrágengið og hver höndin virðist vera upp á móti annarri í ríkisstjórninni.

Í næstu viku verður Natóheræfingin. Fyrir þann heiður að hýsa hér heræfingu, æfingar í að drepa, hertaka, sprengja o.s.frv. þarf íslenska þjóðin að greiða um 45 milljónir!

Nú er einnig að koma í ljós að hingað til lands munu reglulega koma norskar og ef til vill einnig danskar Natóherflugvélar á kostnað íslenskra skattborgara. Þessar heimsóknir munu þó aðeins eiga sér stað á friðartímum!

Þessar skuldbindingar ríkisstjórnarinnar í þágu hernaðar í heiminum munu sem sagt kosta á annan miljarð króna en þó hafa ákvarðanir um þessa skuldbindingu verið tekin án samráðs við Alþingi og án lagalegra heimilda.

Finnst öllum þetta eðlilegt?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 08 12th, 2007| icon33 Comments »