
Þessari helgi var eytt á þingi unga fólksins. Þar var margt gaman,annað ekki jafn gaman.
Ég er þó miklu fróðari eftir helgina.
Ég fékk það til að mynda staðfest frá ungum sjálfstæðismanni og guðfræðinema að ég færi til helvítis og ég væri með lítið hjarta. Ég veit ekki hvort það tengdist því beint að ég sagði að guð væri ekki til eða að ég fordæmdi trúboð í opinberum skólum.
Orðaforðinn minn er sömuleiðis búinn að aukast til muna eftir helgina. Ég elska t.d. orðið samfélagsverkfræðilegt sem var að finna í ályktun frá ungum sjálfstæðismönnum.
Af öllu sem átti sér stað um helgina er ég þó ekki fjarri því að uppáhalds mómentið mitt hafi verið að lesa setningun “Það myndi leiða til sveigjanlegri nýtingar bænda á búfénaði…” í ályktun frá ungum jafnaðarmönnum um landbúnað.
Jáhá
Jæja, það gengur víst ekki lengur að vera með væl og vein efst á blogginu. Ég hef það nefnilega bara ágætt. Um helgina var ég í húsmæðraorlofi þar sem eiginmaðurinn og dótturin fóru í Skagafjörðinn. Hann í göngur og hún að láta ömmu sína dekra við sig.
Bíllinn minn er hins vegar ekki mjög heilsuhraustur. Hann bilaði illa rétt fyrir utan Blönduós og er þar í lamasessi. Freyja fær því sennilega draum sinn uppfylltan á morgun - að fara í flugvél.
Í dag er vika síðan ég fór í hálskirtlatöku. Ég er enn að velta fyrir mér hvernig í ósköpunum mér datt í hug að samþykkja aðgerðina. Ég hef aldrei upplifað annan eins sársauka.
Ég verð skv. læknisráði heima í c.a. viku í viðbót að jafna mig. Svo fer að verða ansi mikið að gera þannig að það er eins gott að hálsinn á mér verði til friðs.
Ef þið eigið skemmitlegar videómyndir, bækur eða annað skemmtiefni er allt vel þegið.