
Freyjan mín er komin í jólaskap. Hún þreytist a.m.k. ekki á því að segja vá yfir hinu og þessu jólaskrautinu og nær furðu vel að tengja allt sem hún sér jólapökkum þessa dagana. Ég velti því gjarnan fyrir mér hvar ég hef gert mistök í uppeldinu, hvernig mér tókst að skapa og ala upp stúlku sem tveggja ára gömul er farin að taka þátt í neyslukapphlaupinu af lífi og sál. Hún er ekki beinlínis hógvær í kröfum sínum og þegar hún er spurð hvað hún vilji fá í jólagjöf stendur ekki á svarinu. MYNDAVÉL! svo hún geti brosað. Heyrið það afar og ömmur - eitt stykki myndavél takk.
Mömmunni líst að vísu miklu betur á harða pakka þessa jól og bendir á bókatíðindi í því samhengi. Bittu slaufur Einar Áskell og Barbapabbi í langferð er t.d. eitthvað sem sárvantar í bókaseríuna hennar Freyju.
Vegna litla jólasveinsins ákvað ég að gerast fyrirmyndar húsmóðir síðustu helgi og baka piparkökur. Svo sátum við mæðgurnar dágóða stund og skreyttum þær, eða ég skreytti og hún málaði.
Það er stuð á Alþingi.
Þar get ég beytt mér fyrir breytingu á LÍN lögunum.
Flutt þingsályktunartillögu í von um að bæta réttindi námsmanna.
Svo get ég varla beðið eftir að fá svar við þessari fyrirspurn minni.
Fyrir all nokkrum dögum lofaði ég að fjalla meira um feð mína til Osló. Þar var ég í þrjá daga á Norðurlandaráðsþingi æskunnar og þrjá daga í viðbót á Norðurlandaráðsþingi ásamt uppáhalds ferðafélaga mínum henni Þórhildi.
Þing æskunnar var ansi dramatískt að þessu sinni. Nenni engan vegin að fjalla um dramað en get sagt að allt endaði þetta vel og fulltrúa Sveriges demokrats var vísað af staðnum.
Að öðru leyti gekk þingið vel. Komið var í veg fyrir að nokkrar hræðilegar ályktanir kæmust í gegn og nokkrar góðar ályktanir voru samþykktar t.d. ályktun mín um jafnrétti
Lika möjligheter för kvinnor och män
Ungdomens Nordiska Råd vill att de nordiska länderna garanterar lika möjligheter för varje individ, oavsett kön.Stereotyper som innebär kategorisering i manligt och kvinnligt är skadliga. För att kämpa mot stereotyper och pornografisering måste alla nordiska länder öka utbildning om sex, sexuell frihet och kommunikation mellan män och kvinnor.
UNR konstaterar att kvinnor och män fortfarande inte har lika lön för samma arbete. Därför tycker UNR att de offentliga i hela norden ska kunna göra organisationer och företag skyldiga till att ge all data som behövs för att bevisa att de inte diskriminerar efter kön.
UNR anser att:
• Nordiska rådet uppmanar de nordiska regeringarna och
arbetsmarknadsparterna att tillsammans sträva för att eliminera
löneskillnaderna mellan könen.
• Nordiska rådet uppmanar de nordiska regeringarna att lägga vikt
vid att jämställdhetsfrågor alltid tas med i skapande och
implementering av offentlig policy.
• Nordiska rådet arbetar för att de nordiska parlamenten agerar som
föredömen när det gäller könsbalans genom exempelvis
fördelningen i parlamentariska kommittéer och styrelse samt vid
representation.
• Öka utbildningar om sex, sexuell frihet och kommunikation mellan
män och kvinnor.
Auk þess að funda stíft fengum við tækifæri til að sitja á verðlaunaafhendingu Noðurlandaráðs sem og fengum boð í fullt af veislum þar sem okkur gafst tækifæri til að hitta skemmtilegt fólk og útvíkka sjóndeildarhringinn.
Besta veislan var þó eflaust þegar að við Þórhildur sungum veislusönginn í sendiherraboðinu hjá sendiherra Íslands í Osló. Fyrir áhugasama fylgir textinn hér að neðan.
…… , með svo miklar hvatir til kvenmanna að ég get hreinlega ekki mætt í vinnuna. ”
Sagði ein stelpan í umræðuhópnum um réttindi samkynhneigðra á Norðurlandaráðsþingi æskunnar til að benda á fáranleika þess að samkynhneigð hefði verið flokkuð sem sjúkdómur jafn lengi og raunin er.
Önnur skemmtileg umræða í þessum sama hópi var;
Aulinn: “Ég er ekki með neina fordóma gegn samkynhneigðum og já, ég get alveg verið sammála um allt er varðar aukin réttindi þeirra nema ég set ákveðinn varnagla við að samkynhneigðir geti ættleitt börn”
Hinn: “af hverju?”
Aulinn: “Því náttúran ætlaði því ekki svo, það er ekki náttúrulegt”
Hinn: “Nú er ég staddur í Osló, er frá Danmörku og ég FLAUG hingað þrátt fyrir að guð gæfi mér ekki vængi. Er það ekki ónáttúrulegt?”
Fjalla meira um þessa æðislegu ferð næstu daga.