Hver er hræddur við grimman úlf (sungið skrækri röddu) er viðlagið í nýju teiknimyndinni hennar Freyju um grísina þrjá. Mikið vona ég að hún fái leiði á þessari teiknimynd og taki aftur til við að horfa á Tinna, Lukkuláka og Ástrík. Ég er satt að segja farin að sakna þeirra.
Það er ömurlegt veður úti. Ég elska það! Nágrannar mínir hafa nefnilega undanfarin ár tekið forskot á sæluna hvað varðar flugelda og prófað hinar margvíslegustu gerðir af bombum og flugeldum fleiri fleiri daga fyrir áramót með tilheyrandi hávaða. Í dag hefur engu verið skotið upp. Jahú! í mínum huga er nefnilega einfaldlega bannað að skjóta upp flugeldum fyrr en 12 á miðnætti á gamlárskvöld.
Hvað er annars málið með þetta pakk sem er farið í samkeppni við björgunarsveitirnar í flugeldasölu?

