Helgin fór í að þvælast um Austurland. Þar var ég ásamt nokkrum öðrum vöskum UVG liðum með almennan áróður stjórnmálaskóla UVG sem var haldinn í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Skólinn tókst afar vel. Sérstaklega var ég hrifin af ungu róttæku stelpunum sem mættu.
Um kvöldið fórum við út að borða á Café Nilsen og höfðum það mjög kósí. Eftir nokkra stund mætti fótboltalið KR á svæðið. Sumir strákarnir virtust halda að það væri mjög fyndið að vera með landsbyggðarfordóma og dólg. Þar sló einn drengur rækilega í gegn með því að neita að standa upp fyrir stelpu sem hann hafði rænt sætinu af. Gulla, ein af þessum hressu róttæku stelpum á Austurlandinu, setti upp gríðarlega sætt bross og hváði “Ó mæ god, þú ert svo kúl - viltu gefa mér five”. Greyið strákurinn vissi ekkert hvernig hann átti að bregðast við og hrökklaðist í burtu.
Seinna um kvöldið gerðumst við svo fræg að fara á eina skemmtistað bæjarins PEPEZ þar sem við skemmtum okkur fram eftir nóttu með KR-ingunum. Að vísu var lítið drukkið enda er þar að finna með dýrustu bjórum landsins en ég var mjög fegin daginn eftir þegar ég vaknaði úthvíld og sæl upp í sveit við ilminn af lambahrygg.