Ég var að rekast á skemmtilega framsetningu á ályktun UVG hjá Vísi. Þar er fyrirsögnin “Ungliðar í VG óánægðir með þingflokkinn”.
Vegna þessa er mér ljúft og skylt að árétta að ég, og stjórn UVG að ég tel, er í meginatriðum mjög ánægð með störf þingflokks VG. Ég reyndar geng svo langt að segja að ég telji að VG sé lang öflugasti þingflokkurinn á Alþingi og svo sannarlega með bestu málefnin.
Óánægja mín snýst eingöngu um þetta afmarkaða mál, þ.e. að bæta því inn í markmið nýrra heildarlaga um grunnskóla og leikskóla að skólastarfið skuli mótast af kristinni arfleifð íslenskrar menningar . Ég tel að þetta ákvæði þjóni eingöngu þeim tilgangi að réttlæta afskipti eins trúfélags, Þjóðkirkjunnar, af skólastarfi og tel það mjög sorglega staðreynd að enn þann daginn í dag sé það virkilega talið valkostur að foreldrar sem ekki sætti sig við trúboð innan skólanna þurfi að láta taka börn sín afsíðis meðan slíkt fer fram.
Sá spuni að við séum almennt á móti kristinfræðikennslu og það að gefa í skyn að við viljum afneita uppruna okkar og menningu er í raun ekki svara verður. Að sjálfsögðu er hægt að kenna kristinfræði og trúarbragðafræði í grunnskólum landsins. Fagleg kennsla hefur ekkert með trúboð að gera. Við erum ekki að nálgast málið á forsendum trúleysis heldur trúfrelsis eins og kemur skýrt fram í yfirlýsingunni. Við viljum einfaldlega að nemendum leikskóla og grunnskóla sé ekki mismunað á grundvelli trúar eða lífsskoðana.



