Jul 31

Ólafur.jpg

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 07 31st, 2008| icon3No Comments »
Jul 25

Heitasti dagur sumarsins samkvæmt fréttum var ansi tíðindalaus á mínu heimili. Ég ligg veik. Varð að viðurkenna það fyrir sjálfri mér eftir ótal neikvæð óléttupróf (talandi um þráhyggju) að ég var í alvöru ekki ólétt þrátt fyrir mánaðar höfuðverk og ógleði og gubb. Hins vegar er ég komin á prýðis lyf sem vonandi fara að virka. Freyja naut aðdáunar afa síns og ömmu í dag en Freyr var eins og allir mínir vinir vita læstur inn á baðherbergi. Þar mun hann dvelja þar til hann hefur sett upp “nýju” baðinnréttinguna sem er búin að prýða stofuna hjá okkur í heilt ár.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 07 25th, 2008| icon31 Comment »
Jul 18

Fór í afmæli til Ögmundar í gær. Stórglæsileg veisla, fullt af fólki og skemmtilegar ræður. Steingrímur stóð sig að venju og gaf Ögmundi nokkrar bækur þar á meðal eina sem ber þann stórskemmtilega titil If You’re an Egalitarian, How Come You’re So Rich? .

Við fórum nokkur úr UVG og sungum Veislusönginn fyrir afmælisbarnið (mjög ílla svo það sé ekkert verið að fela það) og sögðum frá sögninni sem við notum mikið í ungliðahreyfingunni “að ömma”. Ég var beðin um það eftir á af nokkrum að útskýra hver merkingin væri og hvort það væri jákvætt eða neikvætt að ömma. Ég lenti í þó nokkrum vandræðum þar sem ég held að hver sé með eigin skilning á hugtakinu en dæmi um notkun sagnarinnar eru:

“Við ömmum þetta bara”
“Geturu reynt að ömma þetta svo allir verði sáttir?”
“Varstu ömmaður?”
“Við látum ekkert ömma okkur með þetta”

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 07 18th, 2008| icon31 Comment »
Jul 8

Mikið var ég skemmtilegur félagsskapur um helgina. Ég fór í fjölskyldusamkomu hjá móðurætt Freys á Snæfellsnesi á laugardaginn. Mætti um miðjan dag, drakk kaffi, borðaði kvöldmat og svaf svo frá átta til átta. Svo svaf ég í bílnum á leiðinni heim og tók góðan langan lúr þegar heim var komið.

Ég ætti að vera úthvíld en… nei ég er ennþá þreytt.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 07 8th, 2008| icon3No Comments »