Heitasti dagur sumarsins samkvæmt fréttum var ansi tíðindalaus á mínu heimili. Ég ligg veik. Varð að viðurkenna það fyrir sjálfri mér eftir ótal neikvæð óléttupróf (talandi um þráhyggju) að ég var í alvöru ekki ólétt þrátt fyrir mánaðar höfuðverk og ógleði og gubb. Hins vegar er ég komin á prýðis lyf sem vonandi fara að virka. Freyja naut aðdáunar afa síns og ömmu í dag en Freyr var eins og allir mínir vinir vita læstur inn á baðherbergi. Þar mun hann dvelja þar til hann hefur sett upp “nýju” baðinnréttinguna sem er búin að prýða stofuna hjá okkur í heilt ár.
One Response
July 30th, 2008 at 17:57
hvað er í gangi með þig og Erlu?? Mér er löngu hætt að lítast á þetta :/