Sep 14

Þrátt fyrir að ég njóti þess alltaf upp að vissu marki að vera ein heima þá finnst mér 3 dagar alveg nóg.

Helgin er reyndar búin að vera óvenju viðburðarík.
Ég tók á móti ótrúlega skemmtilegum heimspekinemum í vísindaferð til VG á föstudaginn.
Í gær fór ég í síðbúna brúðkaupsveislu hjá Kötu og Gunna.
Og í dag fór ég á myndlistasýningu á Kjarvalsstöðum og varð heilluð af list Braga Ásgeirssonar.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 14th, 2008| icon31 Comment »
Sep 5

Ung vinstri græn krefjast þess að Árni Mathiesen segi af sér sem fjármálaráðherra og mæla með því að manneskja með betri skilning á þörfum þjóðarinnar taki við. Fjármálaráðherra segist ekki hafa svigrúm til að hækka laun ljósmæðra þrátt fyrir loforð ríkisstjórnarinnar um að leiðrétta laun kvennastétta. Á sama tíma ver ríkisstjórnin 200 milljónum króna á ári í loftrýmiseftirlit. Ung vinstri græn vilja einnig benda á að hér blasir við frábært tækifæri til að fjölga konum í ráðherraliðinu.

Ung vinstri græn skora ennfremur á ríkisstjórnina að efna gefin loforð um að leiðrétt kjör umönnunarstétta og byrja á ljósmæðrum. Bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar hafa síðustu daga viðurkennt í pontu á Alþingi að laun ljósmæðra séu óásættanleg miðað við ábyrgð og menntun. Þjóðin stendur með ljósmæðrum og vill að ríkisstjórnin standi við orð sín. Allt hefur komið fyrir ekki og nú bitna verkföll ljósmæðra á barnshafandi konum, nýbökuðum mæðrum og börnum þeirra á mikilvægustu augnablikum lífs þeirra. Slíkt ástand er ólíðandi í þjóðfélagi sem stærir sig af einu besta heilbrigðiskerfi heims og það er aum ríkisstjórn sem ekki getur staðið í lappirnar, staðið við eigin loforð og tryggt öryggi mæðra og barna.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 09 5th, 2008| icon3No Comments »