Æ… ég hef víst misskilið þetta allt saman. Það að ákveðið Samfylkingar fólk segist vilja kjósa en hætti svo við eftir ræðu formanns flokksins er að sjálfsögðu ekkert tengt foringjadýrkun né tregðu við að stíga niður úr fílabeinsturninum. Nei! það tengist bara því að stjórnarherrar okkar og frúr vilja eiga náðuga aðventu.
P.s.
Hins vegar er ekki hægt að misskilja Möggu P sem flutti þrusu ræðu á borgarafundinum í kvöld. Hún var svo flott! Hér sést hún stílísera Jón Sigurðsson.
