Dóttirin setur á sig húfu, sólgleraugu og setur veskið mitt á öxlina.
Freyja: “Mamma ég er farin í vinnuna”
Ég: “Nú hvað vinnur þú við ? Ertu blaðamaður ?
Freyja setur sig í stellingar og hváir við “NEI! mamma. Ég er BLAÐAKONA!”

Katrín Jakbosdóttir, ofurkona, var að leggja fram þingsályktunartillögu og frumvarp til laga um breytingar á LÍN á Alþingi. Ég er náttúrulega rígmonntin og egósentrísk enda lagði ég þessi tvö mál fram síðast þegar ég “sat inni”.
Mikið vona ég að þingheimur hlusti vel og vandlega á hana og greiði leið þessara mála.