Greyið Geir!
Að hafa verið í samstarf imeð flokki sem bugaðist, hlustaði á raddir mótmælenda og lét á endanum undan kröfum þjóðarinnar. Ósvífni!
Greyið Geir!
Að hafa verið í samstarf imeð flokki sem bugaðist, hlustaði á raddir mótmælenda og lét á endanum undan kröfum þjóðarinnar. Ósvífni!
Dóttir mín skildi ekki af hverju lögreglumennirnir trömpuðu niður fína mótmælenda-snjókarlinn hennar.
Öllu var þó reddað snarlega og nýr snjókarl búinn til úr rústum hins gamla.
Ég treysti á að Elías Jón hjálpi mér að laga þessa síðu, geri hana töff ….. Elsku Elli?
Það var bráðskemmtilegur maður í sjónvarpinu í gær. Uppfullur af heilagri reiði og taldi ljóst að byltingin væri hafin þar sem lögreglan var ekki að lemja anarkista eða Ung vinstri græn heldur hans eigin friðasama pabba !
Já svona eru mælikvarðar okkar ólíkir
Svo reynir fólk að halda því fram að það sé auðvelt að ná frama innan Framsóknarflokksins.
Endemis bull og vitleysa. Ég meina maðurinn skráði sig í flokkinn fyrir alveg 2 vikum eða svo og hefur auk þess áratuga reynslu í gegnum gen sín.
Freyja Sigrún er orðin heilbrigð eftir rúmlega viku hitavellu. Ég hef því tekið samviskusamlega við hlutverki sjúklingsins og hef legið fárveik í tvo daga.
Ég stunda því engin mótmæli í dag en pirra mig í staðinn á yfirlýsingu Radda Fólksins sem virðist ekki telja nein mótmæli nema þeirra eigin réttmæt. Eftir allt það sem hefur gengið á hér á landi undanfarna mánuði finnst þessum röddum í lagi að halda því fram að þau mótmæli eða fundir sem ekki hafa verið tilkynnt lögregluyfirvöldum séu ólögleg og óréttmæt.
Ég skil vel að þessi bjánalæti Ástþórs fari í taugarnar á fólki en þessi viðbrögð finnst mér einum of.
Í dag sinnti ég fundarsetu af miklu kappi. Fór fyrst á Evrópuráðstefnu VG sem var ótrúlega skemmtileg og fræðandi.
Svo rölti ég í bæinn og sat fund um ástandið á Gaza svæðinu. Sá fundur var góður, fjölmennur en ég get ekki sagt að hann hafi beinlínis verið skemmtilegur enda um ótrúlega sorglegt mál að ræða.
Undanfarið hef ég verið á línu Smásmugunnar um fundi en ekki í dag. Hefði hvorugum fundinum viljað sleppa.
Ég get ekki hætt að hugsa um allar þessar blóðugu myndir af börnum, konum og körlum í Palestínu sem hafa birst í fjölmiðlum undanfarna daga. Heil þjóð lömuð af ótta, sorg og hatri.
Ég einfaldlega get ekki náð því að áratugum eftir helförina sé það fólk sem áður var ofsótt að endurtaka grimmdarverkin - smala fólki í gettó, svipta það öllum mannréttindum, svelta það, niðurlægja og drepa.
Enn og aftur situr heimurinn hjá, snýr baki við þjáningunum fólksins en rembist þess í stað við að koma sér saman um ályktanir um ástandið.

Eftir að bölva þessari stöðugu umfjöllun fjölmiðla um klæðaburð fólks á fundum fannst mér þessi úttekt á Smugunni kærkomin skemmtun.
Lögregla hafði töluverðan viðbúnað í miðbænum á meðan mótmælin stóðu. Flestir lögregluþjónarnir héldu sig inni í lögreglubílum og voru flestir með lögregluhúfu á höfðinu.”
Þeir eiga glæstar hallir, þeir eiga lúxusbíl
þeir eiga meir en nóg til hnífs og skeiðar
þeir kæfa okkur í táragasi og kalla okkur skríl
þeir koma okkar vandræðum til leiðar
Svo reynir fólk að halda því fram að ég sé gamaldags í vali á drykkjusöngvum…