Feb 28

Ég mæli með opnu húsi VG í Reykjavík á morgun kl. 14:00 að Tryggvagötu 11. Þar munu ég og fleiri frambjóðendur í forvali VG stíga á stokk, kynna okkur og sannfæra flokksfélaga um að kjósa okkur.
Ég er komin með frasann sem mun tryggja mér sigur.

“Ég lét af störfum sem formaður UVG, sunnudaginn 5. október. Daginn eftir fór allt til fjandans og Geir Hilmar Haarde birtist á sjónvarpsskjánum á heimili mínu og bað Guð að blessa Ísland”

icon1 Auður Lilja | icon2 forval VG 2009 | icon4 02 28th, 2009| icon35 Comments »
Feb 28

Ég fór á skemmtilegan fund UVG í dag um kvenfrelsi og Evrópusambandið. Þorgerður Einarsdóttir, dósent í kynjafræði við Háskóla Íslands, var með áhugaverða framsögu og að henni lokinni sköpuðust afar skemmtilegar umræður. Eftir fundinn tel ég að ESB sé að ýmsu leiti mjög framarlega hvað varðar kvenfrelsi enda samræmist það markaðssjónarmið ESB að konur taki aukinn þátt í atvinnulífinu. Fundargestir bentu þó á að mjög margt er enn ógert og hægt er að gera betur hvað varðar, vændi, mannsal, kynlífsiðnaðinn almennt og þá staðreynd að það eru jú eftir allt karlar sem stjórnar ESB að mestu leiti. En spurningin hlýtur alltaf að vera sú hvort að við eigum að gera það innan ESB eða í stærra alþjóðlegu samhengi.

Að sjálfsögðu myndaðist ekki einróma niðurstaða á fundinum með eða á móti ESB út frá þessu sjónarhorni enda á UVG eftir að halda mun fleiri skemmtilega fundi um málefnið áður en niðurstaða verður borin undir landsfund hreyfingarinnar.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 28th, 2009| icon31 Comment »
Feb 26

Freyjan mín er svo lasin, með rjúkandi hita. Við mæðgurnar erum góðar saman í slappleikanum. Sem betur fer eigum við góðan eiginmann/faðir sem snýst í kringum okkur, kaupir ís og hvaðeina sem okkur dettur í hug.

Vinkona mín, Snærós, var annars að kenna mér nýja línu til að nota á heimilisfaðirinn. “Ég myndi gera það fyrir þig ef þú værir óléttur”. Virkar mjög vel enn sem komið er. Hann hugsar henni þegjandi þörfina.

icon1 Auður Lilja | icon2 Freyja Sigrún | icon4 02 26th, 2009| icon31 Comment »
Feb 25

Í þessum bæklingi gefst ykkur tækifæri til að kynna ykkur alla frambjóðendur í forvali VG í Reykjavík.

Um mig segir :

Auður starfar sem mannauðsráðgjafi hjá Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar. Áður hefur hún starfað sem þjónustufulltrúi í bönkum, við afgreiðslu- og fiskvinnslustörf. Auður er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu og BA-gráðu í stjórnmálafræði. Auður er gift Frey Rögnvaldssyni, blaðamanni og
þau eiga dótturina Freyju Sigrúnu.

Auður var formaður Ungra vinstri grænna árin 2006-2008 og hefur á yfirstandandi kjörtímabili setið tvisvar á Alþingi sem fyrsti varaþingmaður VG í Reykjavíkurkjördæmi syðra þar sem hún m.a lagði fram breytingu á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna og þingsályktunartillögu um úttekt á réttindum og skyldum námsmanna.

Auður hefur verið virk í hagsmunabaráttu stúdenta og telur grundvallaratriði að hér ríki jafnrétti til náms á öllum námsstigum. Hún vill nýta skattkerfið til að fjármagna öflugt velferðarsamfélag þar sem engum er mismunað og enginn verður útundan. Til að svo megi vera telur hún nauðsynlegt að setja markaðsöflunum skorður með skilvirkri löggjöf, tryggja réttláta tekjuskiptingu og lýðræðislega stjórnarhætti. Aukin einkavæðing undanfarin ár hefur fært völd frá lýðræðislega kjörnum fulltrúum til einkaaðila. Einkavæðing er í eðli sínu andlýðræðisleg og á alls ekki heima í stofnunum og fyrirtækjum sem sýsla með almannahagsmuni. Í þeim aðstæðum sem við stöndum frammi fyrir í dag er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að tryggja að ekki verði vegið að grundvallarstoðum íslensks velferðarsamfélags. Auður telur þó að margt sé hægt að gera til að skera niður útgjöld ríkisins, t.a.m. að leggja niður Varnarmálastofnun, ganga úr NATO, hætta heræfingum í íslenskri lögsögu, enda á Ísland að vera herlaust land, friðlýst fyrir efna- og kjarnavopnum.

icon1 Auður Lilja | icon2 forval VG 2009 | icon4 02 25th, 2009| icon3No Comments »
Feb 25

Hvenær munu íslensk stjórnmál hætta að snúast um Davíð Oddsson?

icon1 Auður Lilja | icon2 Stjórnmál | icon4 02 25th, 2009| icon3No Comments »
Feb 24

Rosaleg kosningalykt er af efnahagstillögum Framsóknarflokksins.  Minnir mig óneitanlega á 90% húsnæðislánin. Af hverju í ósköpunum ættum við að stefna á 20% flata niðurfellingu? Lausn sem hagnast stórefnafólki hvað best. Eigum við ekki frekar að hjálpa þeim sem þurfa á að halda?

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 24th, 2009| icon31 Comment »
Feb 22

Jæja ætli ég segi þá ekki forvalsbaráttuna formlega hafna. Ég mætti á fund hjá UVG í hádeginu í dag um forgangsröðun, hvar eigi að skera niður, og helmingur fundargesta voru frambjóðendur. Það er mjög góð vísbending um að kosningabaráttan sé hafin enda  er framboðsfrestur útrunninn og brátt fá félagar VG í Reykjavík tækifæri til að kjósa í fimm efstu sætin í  báðum Reykjavíkurkjördæmunum úr hópi einstaklega frambærilegra frambjóðenda.

Síðan mín er orðin stórglæsileg og ég nota tækifærið til að þakka Óla hjá Nepal og Elías Jóni fyrir aðstoðina. Ef ég hefði ekki haft þá hefði ég sennilega orðið geðveik á html kóðum þrátt fyrir mikla sjálfsbjargaraviðleitni.

Ef ykkur langar að sýna stuðning við framboðið eru þið velkomin í facebook-hópinn  minn, getið kommentað eða bara hvaðeina sem ykkur dettur í hug.

icon1 Auður Lilja | icon2 forval VG 2009 | icon4 02 22nd, 2009| icon31 Comment »
Feb 16

Bara svona til að það sé öllum ljóst þá er þessi síða að undirgangast nokkrar breytingar og er að komast í forvalsgír. Stefnumálin eru í vinnslu, en svona til að sýna hvað ég  iðka lýðræðislega og upplýsta starfshætti ákvað ég að þið getið fylgst með öllum breytingum jafn óðum.

icon1 Auður Lilja | icon2 forval VG 2009 | icon4 02 16th, 2009| icon32 Comments »
Feb 16

Árið 1992, voru sett ný lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Með lögunum breyttist grundvöllur lánasjóðsins. Frá þeim tíma átti lánasjóðurinn að bera sig sjálfur. Sjálfstæðisflokkurin, með stuðningi Alþýðuflokks, hafði þar með náð að troða markaðshyggjunni inn í stuðningsnet íslenskra námsmanna. Markaðshyggju sem átti eftir að koma að í flestum kimum íslensks samfélags allt fram til dagsins í dag.

Lánasjóður íslenskra námsmanna er verkfæri okkar til að tryggja jafnrétti til náms. Leið til að hvetja fólk til náms og styðja við bakið á því. Með því að setja kröfu á lánasjóðinn að hann standi undir sér breyttist eðli hans og verulega var þrengt að tækifærum sjóðsins að standa undir hlutverki sínu. Það er ekki eðlileg krafa að helsta stuðningskerfi íslenskra námsmanna þurfi að standa undir sér enda ætti ríkið ekki sjá eftir einni einustu krónu í að koma upp menntaðri þjóð. Það er margt ógert í málefnum lánsjóðsins, svo margt sem sjóðurinn gæti gert hefði hann nægjanlegt fjármagn

Okkur ber að standa vörð um Lánasjóð íslenskra námsmanna og styrkja hann til muna svo hann sé í stakk búinn til að sinni upphaflegu hlutverki sínu, að greiða götu fólks til menntunar og jafna aðstöðu til fjölbreytts náms. Tökum baráttuna og berjumst fyrir breytingum á LÍN í takt við það velferðarsamfélag sem nauðsynlegt er að taki við af markaðssamfélaginu eftir kosningar.

Greinin birtist á Smugunni 15.02.2009

icon1 Auður Lilja | icon2 Greinasafn, Stjórnmál | icon4 02 16th, 2009| icon3No Comments »
Feb 12

Ragnheiður Ólafsdóttir teiknimiðill með meiru hefur vakið nokkra athygli eftir að hún settist inn á Alþingi í fyrradag.  Í gær flutti hún ansi merkilega ræðu að mínu mati þar sem hún virðist skora á Kolbrúnu Halldórsdóttir, umhverfisráðherra, að hætta að velta sér upp úr smámálum eins og mengun frá álverum og annarri stóriðju en einbeita sér þess í stað að því að rannsaka áhrif sólgosa á loftlagið. Ræðuna endar hún svo á þeirri stórmerku ábendingu að  ekki sé hægt að lifa einvörðungu á grasi og káli (sem verða þá sennilega örlögin ef ekki rísa fleiri og öflugri álver á Íslandi).

Mikið er skemmtilegt að fá ný sjónarmið inn í stjórnmálaumræðuna.

icon1 Auður Lilja | icon2 Uncategorized | icon4 02 12th, 2009| icon3No Comments »

« Previous Entries