Ég fór á skemmtilegan fund UVG í dag um kvenfrelsi og Evrópusambandið. Þorgerður Einarsdóttir, dósent í kynjafræði við Háskóla Íslands, var með áhugaverða framsögu og að henni lokinni sköpuðust afar skemmtilegar umræður. Eftir fundinn tel ég að ESB sé að ýmsu leiti mjög framarlega hvað varðar kvenfrelsi enda samræmist það markaðssjónarmið ESB að konur taki aukinn þátt í atvinnulífinu. Fundargestir bentu þó á að mjög margt er enn ógert og hægt er að gera betur hvað varðar, vændi, mannsal, kynlífsiðnaðinn almennt og þá staðreynd að það eru jú eftir allt karlar sem stjórnar ESB að mestu leiti. En spurningin hlýtur alltaf að vera sú hvort að við eigum að gera það innan ESB eða í stærra alþjóðlegu samhengi.
Að sjálfsögðu myndaðist ekki einróma niðurstaða á fundinum með eða á móti ESB út frá þessu sjónarhorni enda á UVG eftir að halda mun fleiri skemmtilega fundi um málefnið áður en niðurstaða verður borin undir landsfund hreyfingarinnar.
March 3rd, 2009 at 18:36
Alltaf má gera betur en ég held að það væri til mikilla bóta að gera það á vettvangi Evrópusamstarfs, sbr. t.d. http://epn.dk/samfund/arbmarked/article1620883.ece